Eldflaugamaðurinn sýndi Ólafi Alpa 30. maí 2005 00:01
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, og ríkisstjórn Íslands tóku formlega á móti Dr. A.P.J. Abdul Kalam, Indlandsforseta, á Bessastöðum klukkan 10:15 í gærmorgun. Eftir móttökuna ræddu þeir saman í rúman hálftíma áður en þeir ræddu við íslenska og indverska blaðamenn. Á fundinum ræddu forsetarnir samstarf landanna og þá einkum í tækni- og lyfjaþróun. Kalam er geimverkfræðingur að mennt og er einn virtasti vísindamaður Indverja, oft kallaður Eldflaugamaðurinn. Í störfum sínum sem forseti hefur hann einkum einbeitt sér að því að Indland verði orðið þróað iðnríki árið 2020, en staða Indlandsforseta í stjórnkerfinu er sambærileg og staða forseta Íslands. Ólafur Ragnar sagði frá því á blaðamannafundinum að Kalam hafi skellt tölvu upp á borðið og sýnt sér vikugamlar myndir sem nýjasti gervihnöttur Indverja hafi tekið af Ölpunum, og líkti hann þeirri sýningu við gönguferð í gegnum Alpana. Eftir blaðamannafundinn fóru forsetarnir ásamt fylgdarliði sínu á Nordica Hotel á viðskiptaráðstefnu sem efnt var til af íslensk-indverska verslunarráðinu, sem stofnað var í byrjun mánaðarins. Um 100 gestir voru á ráðstefnunni. Að henni lokinni heimsótti Kalam höfuðstöðvar Actavis í Hafnarfirði og lagði þar hornstein að nýrri byggingu. Þvínæst var haldið upp Háskóla Íslands þar sem Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, og Magnús Jónsson, veðurstofustjóri, tóku á móti honum. Veðurstofan var með sérstaka dagskrá um viðvörunarkerfi vegna jarðskjálfta og annara náttúruhamfara, en einnig heimsóttu forsetarnir Norrænu eldfjallastöðina og hittu stúdenta í Öskju. Að lokum heimsótti Indlandsforseti Stjórnstöð almannavarna í Skógarhlíð. Um kvöldið buðu íslensku forsetahjónin síðan til kvöldverðar í Listasafni Íslands. Í dag mun Kalam meðal annars snæða hádegisverð með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra á Þingvöllum og heimsækja Nesjavelli og kynna sér starfsemina þar. Heimsókninni lýkur á morgun.
Fréttir Innlent Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira