Vonar að hann slái ekki metið 13. október 2005 19:15 "
Já, eitt mark og metið er þá bara fallið," sagði Ingi Björn Albertsson hlæjandi við blaðamann Fréttablaðsins sem innti hann viðbragða vegna ummæla Alberts Brynjars, sonar hans, í DV í gær. Eftir að hafa skorað sigurmark Fylkis gegn Þrótti opnaði Albert markareikning sinn á Íslandsmótinu en karl faðir hans er markahæsti leikmaður mótsins frá upphafi, með 126 mörk. "Ég ætla að slá metið hans pabba," sagði hann án þess að blikna. Semsagt, eitt mark komið og 125 eftir. "Ég á nú þá ósk heitasta að hann felli ekki metið," sagði Ingi Björn. "En það er nú vegna þess að ég vil að hann fái að spila eitthvað erlendis. Það er nú ekki út af neinu öðru. Mér líst afskaplega vel á strákinn og vona að hann eigi framtíðina fyrir sér í boltanum og að hún sé þá annars staðar en hér heima." Markagenið er þó greinilega til staðar í Alberti Brynjari. "Hann er búinn að vera markakóngur allt sitt líf og er sennilega markahæstur leikmaður Fylkis í sögu félagsins. Hann hefur alltaf búið yfir þeim hæfileikum að geta skorað mörk og nú er að sjá hvort þeir hæfileikar verði viðvarandi og nýtist honum í keppni hinna bestu." Albert Brynjar er uppalinn Árbæingur en systkini hans, pabbi og afi (Albert Guðmundsson) voru og eru öll miklir Valsarar. "Hann er alinn upp í Árbænum og er gegnheill Fylkismaður. Enda höfum við aldrei lagt að honum að yfirgefa það félag," sagði Ingi Björn. "Og ég mun mæta á alla Fylkisleiki sem ég kemst á í sumar, það er klárt."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Íslenski boltinn Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira