Þórður neyðist til að hætta 21. maí 2005 00:01 "
Ég er niðurbrotinn maður," sagði Þórður þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. "Þetta er alveg hrikalegt. Ég skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við ÍA ekki alls fyrir löngu og taldi mig eiga 3-4 góð ár eftir í boltanum. Það er afskaplega erfitt að kyngja þessu," sagði Þórður, sem er 33 ára gamall og hefur leikið með ÍA lengst af sínum ferli en jafnframt leikið með KA og Val eitt tímabil ásamt því að vera um tíma í atvinnumennsku hjá Norköpping í Svíþjóð. Þórður segir það hafa verið í lokaleik síðasta tímabils gegn ÍBV að veikin hafi að láta á sér kræla. "Ég hef fengið einstaka köst síðustu tvö ár en eftir þann leik var ég mjög slæmur í hausnum og líkamanum. Ég var að drepast í marga daga á eftir og eftir að hafa gengist undir margar rannsóknir kom í ljós að ég var með einhverskonar afbrigði af flogaveiki," segir Þórður æfði og lék lítið með Skagamönnum á undirbúningstímabilinu. Hann stóð þó á milli stanganna í leiknum gegn Þrótti í 1. umferðinni á þriðjudag og stóð sig mjög vel. "Þetta háir mér ekki í leikjum en kemur eftir á. Ég er ennþá að drepast í líkamanum eftir þann leik," segir Þórður. Það var síðan rétt fyrir helgi sem Þórður og læknar hans komust að þeirri niðurstöðu að réttast væri að hætta. "Mér er ráðlagt að hætta því ef ég held áfram er ég að ögra líkamanum. Og hver veit hvað það getur leitt af sér? Það er allavega ekki mikið vit í að fórna heilsunni fyrir þá áhættu," segir Þórður. Ólafur Þórðarson segir brotthvarf Þórðar vera mjög mikið áfall fyrir lið ÍA. "Við vissum af veikindunum og að til þessa gæti komið en auðvitað vonuðumst við til þess að svo yrði ekki. Hann skilur eftir sig stórt skarð," segir Ólafur en bætir við að það kemur maður í manns stað. "Við eigum góðan markmann í Páli Gísla (Jónssyni)," segir Ólafur en hann kom frá Breiðablik fyrir tímabilið. Þórður mun þó ekki alveg segja skilið við liðið því allar líkur eru á því að Þórður muni taka að sér markmannsþjálfun liðisins. Þá hefur Bjarki Guðmundsson, fyrrverandi markmaður Keflavíkur og KR, verið að æfa með Skagamönnum undanfarnar vikur og er mun hann að öllum líkindum semja við liðið á allra næstu dögum.
Íslenski boltinn Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Segir styttast í fyrsta sigurinn Sjá meira