Jóhannes hættur með landsliðinu 20. maí 2005 00:01
Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Leicester City, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðið í knattspyrnu. Jóhannes Karl sagði í samtali við íþróttadeildina í morgun að þetta geri hann af persónulegum ástæðum, hann telji sig ekki geta sinnt verkefnum á vegum landsliðsins af fullum krafti og því telji hann rétt að stíga til hliðar. Jóhannes Karl sagði að ákvörðun sín snerist ekki um að gagnrýna einn eða neinn en auðvitað hefði fullt af hlutum getað farið betur, eins og hann komst að orði. „Ég er hundrað prósent maður í því sem ég tek mér fyrir hendur. Ég er ekki bitur og óska strákunum góðs gengis,“ sagði Jóhannes Karl við íþróttadeildina en hann útilokar ekki að bjóða sig aftur í landsliðið í framtíðinni. Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari segir að ákvörðun Jóhannesar Karls hefði komið sér í opna skjöldu. Ásgeir sagði að hann og Logi Ólafsson hefðu átt gott samstarf við leikmanninn og engan skugga borið þar á. Auk Jóhannesar Karls hefur Ívar Ingimarsson, varnarmaður Reading, ekki gefið kost á sér í landsliðið. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, segist ekkert skilja í þessari ákvörðun Jóhannesar Karls. Þegar Jóhannes Karl er spurður að því hvort ekki hafi verið rétt að að láta landsliðsþjálfarana eða KSÍ vita af þessari ákvörðun sinni áður en gaf hana út opinberlega sagði hann að vissulega væri nokkuð til í því en ýmislegt kæmi fyrst upp á yfirborðið í fjölmiðlum. Bræður Jóhannesar Karls, Bjarni og Þórður, gefa áfram kost á sér í íslenska landsliðið. Bjarni staðfesti það við íþróttadeildina í morgun. Næsta verkefni landsliðsins eru tveir heimaleikir við Ungverjaland og Möltu 4. og 8. júní í undankeppni HM. Ljóst er að Hermann Hreiðarsson verður ekki með vegna meiðsla í leikjunum, Heiðar Helguson verður í banni í fyrri leiknum og Jóhannes Karl gefur ekki kost á sér frekar en Ívar. Hægt er að hlusta á viðtal við Eggert Magnússon, formann KSÍ, úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Íþróttir Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Segir styttast í fyrsta sigurinn Sjá meira