Ásthildur aftur í landsliðið 20. maí 2005 00:01
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari A-andsliðs kvenna, hefur valið leikmannahóp Íslands fyrir vináttulandsleikinn gegn Skotum, sem fram fer á McDiarmid Park í Perth 25. maí næstkomandi. Stærsta fréttin er örugglega sú að Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði liðsins, er komin í hópinn á ný eftir erfið meiðsli sem hún hlaut í mars á síðasta ári, í vináttuleik gegn Skotum í Egilshöll. Ásthildur sleit þá krossbönd og er nýkomin af stað á ný en það er þó ekki að sjá á leik hennar. Ásthildur hefur nefnilega blómstrað í nýrri stöðu framherja með toppliði Malmö í sænsku úrvalsdeildinni, hefur þegar skorað 6 mörk í fyrstu fimm leikjunum og er sem stendur markahæsti leikmaður deildarinnar. Íslenska kvennalandsliðið hefur náð góðum árangri gegn Skotum í gegnum tíðina. Liðin hafa mæst alls fimm sinnum og hefur íslenska liðið unnið þrisvar, skoska liðið einu sinni og í eitt skipti skildu liðin jöfn. Fyrsti leikur A-landsliðs kvenna var einmitt gegn Skotum árið 1981. Síðasta viðureign liðanna var í Egilshöll í mars 2004 og vann þá íslenska liðið öruggan 5-1 sigur og Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði meðal annars þrennu í þeim leik. Skotar leika vináttulandsleik gegn Finnum í Turku í Finnlandi á föstudag og verða því væntanlega vel undirbúnir fyrir leikinn gegn Íslandi. Íslenska kvennalandsliðið spilar síðan sinn fyrsta leik undankeppni HM í ágúst þegar Hvít-Rússar koma í heimsókn á Laugardalsvöllinn.
Íslenski boltinn Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Segir styttast í fyrsta sigurinn Sjá meira