Erlent

Þrettán fórust með herflugvél

Þrettán fórust þegar herflugvél hrapaði til jarðar skömmu eftir flugtak í suðurhluta Sambíu í dag. Vélin hafði flogið með mat og aðrar nauðþurftir til bæjarins Mongu, þar sem mikli þurrkar hafa verið, en stuttu eftir að hún hafði tekið á loft frá flugvelli bæjarins missti hún hæð og hrapaði til jarðar. Ekki er ljóst á þessari stundu hvað olli slysinu. Tólf hinna látnu voru í flugher Sambíu en sá þrettándi var óbreyttur borgari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×