Khodorkovskí-dóms beðið enn 17. maí 2005 00:01
Uppkvaðningu dómsins yfir rússneska auðjöfrinum Mikhaíl Khodorkovskí var fram haldið í Moskvu í gær, en dómhaldi aftur frestað án þess að dómsúrskurðurinn sjálfur væri kveðinn upp. Dómsuppkvaðningin hófst á mánudag. Þótt orðalag þess hluta dómsins sem fram er kominn bendi sterklega til þess að Khodorkovskí verði sakfelldur töldu verjendur hans sig merkja vísbendingar í textanum um að búast mætti við því að refsingin yrði mildari en sá tíu ára fangelsisdómur sem ákæruvaldið hefur krafist. Meðal helstu ákæruatriða er að Khodorkovskí hafi gerst sekur um stórfelld skattsvik. Réttarhaldið yfir Khodorkovskí - sem var aðaleigandi og forstjóri Yukos-olíufyrirtækisins - hefur grafið undan orðstír rússnesks réttarkerfis og skaðað traust erlendra fjárfesta á rússnesku viðskiptalífi. Tiltölulega mildur dómur kann að verða túlkaður sem tilraun af hálfu yfirvalda til að hrekja gagnrýni erlendis frá á pólitísk afskipti af málinu og til að endurheimta traust fjárfesta. Stjórnmálaskýrendur halda því fram að skyndileg handtaka Khodorkovskís í október 2003 hafi verið hefnd Vladimírs Pútíns forseta fyrir stuðning auðjöfursins við stjórnarandstöðuflokka - en þar með hefði hann brotið óskrifað samkomulag um að stjórnvöld leyfðu auðjöfrum landsins að hafa sitt misjafnlega fengna ríkidæmi í friði svo lengi sem þeir skiptu sér ekki af stjórnmálum.
Erlent Fréttir Mest lesið Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Fleiri fréttir Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Sjá meira