Verst ásökunum þingnefndar 17. maí 2005 00:01
Í skýrslu sem rannsóknarnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings birti um meinta spillingu í tengslum við hina svonefndu olíu-fyrir-mat-áætlun Sameinuðu þjóðanna í Írak, eru sakir bornar á franska, breska og rússneska stjórnmálamenn, en einnig bent á að bandarísk fyrirtæki voru flækt í hin vafasömu viðskipti við ríkisstjórn Saddams Hussein. Í skýrslunni, sem er sú þriðja um þetta efni sem nefndin hefur látið frá sér fara síðustu daga, er fullyrt að bandarísk stjórnvöld hafi látið sem þau sæju ekki þegar bandaríska olíufyrirtækið Bayoil keypti hráolíu frá Írak, þvert á viðskiptabannið, og seldi hana áfram til olíuhreinsistöðva í Bandaríkjunum. Að því er segir í skýrslunni hefði bandarískum stjórnvöldum - með aðildinni að öryggisráði SÞ - verið í lófa lagið að stöðva þessi viðskipti sem gerðu Saddam kleift að raka til sín milljörðum dala, ekki síst með olíusmygli til Jórdaníu, Tyrklands, Sýrlands og víðar. Breski þingmaðurinn George Galloway, sem í skýrslunni er sakaður um að þiggja mútur úr hendi Saddams í formi mjög hagstæðra kaupréttarsamninga að íraskri olíu, kom fyrir þingnefndina í gær og vísaði ásökununum með öllu á bug. Galloway sakaði þingnefndarformanninn, repúblikanann Norm Coleman, um vísvitandi rógsherferð í sinn garð. "Ég er ekki og hef aldrei verið olíusölumaður, né hefur neinn á mínum vegum verið það," sagði Galloway. "Ég var andstæðingur Saddams Hussein þegar ríkisstjórnir og viðskiptajöfrar Bretlands og Bandaríkjanna seldu honum byssur og gas," lýsti hann yfir. Galloway, sem áður var þingmaður Verkamannaflokksins en er nú svarinn andstæðingur Tonys Blair, náði kjöri í neðri deild breska þingsins í kosningunum á dögunum sem frambjóðandi samtaka sem berjast gegn þátttöku Bretlands í hernaðinum í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Innlent Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Innlent Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Innlent Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar Innlent „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Nítján látnir eftir að herflugvél brotlenti á skólabyggingu Rússar opnir fyrir friðarviðræðum en hyggist ekki slá af kröfum sínum Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Ökumaðurinn skotinn af vitnum á vettvangi Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Sjá meira