Venjulegir Danir gera út á vændi 16. maí 2005 00:01
Millistéttarfólk í Danmörku, sem aldrei hefur komist í kast við lögin, er í auknum mæli farið að flytja erlendar konur til Danmerkur og gera þær út sem vændiskonur. Segja má að kínverska og albanska mafían fái liðsauka frá herra og frú Jensen, eða dönskum Jónum og Gunnum, sem virðast líta svo á að hægt sé að ná í skjótfenginn gróða með vændisþjónustu. Mafían hefur uppi á konunum, Danirnir koma þeim til landsins og gera þær út. Þetta eru Danir í góðri þjóðfélagsstöðu og hafa hvorki tengst eða tekið þátt í glæpsamlegu athæfi áður. Yfirmaður hjá dönsku rannsóknarlögreglunni, Troels Jörgensen, segir að þeir hafi orðið varir við mikla aukningu, sérstaklega á síðasta ári. Í viðtali við Extra Bladet vísar hann í dóm sem nýlega féll á Jótlandi yfir eldri hjónum. Hjónin, sem höfðu verið gift í 25 ár, ráku nokkur vændishús. Þegar lögreglan komst á snoðir um reksturinn var lagt hald á tugi milljóna íslenskra króna sem þau höfðu haft upp úr krafsinu. Forstöðumaður danskra samtaka sem berjast gegn mansali, Trine Lund-Jensen, segir þetta hægðarleik og tekur dæmi af Dönum sem keyra á Volvonum til landamæra Þýskalands. Þar greiði þeir um hálfa milljón íslenkra króna fyrir konu frá Austur-Evrópu eða Afríku. Ef hún er deyfð má auðveldlega keyra með hana til Danmerkur, og jafnvel þrjár eða fjórar til viðbótar, segir Jensen. Eigi Danirnir góðan kjallara þar sem hægt er að geyma konurnar, og aðgang að Netinu til að auglýsa, þá komi kúnnarnir og viðkomandi sé í bullandi bisness.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira