Ætla að kveðja með titli 11. maí 2005 00:01
Það verður sjónarsviptir af Heimi Guðjónssyni þegar hann leggur skóna á hilluna enda hefur hann verið einn litríkasti karakterinn í boltanum síðustu árin Heimir hefur gengið í gegnum súrt og sætt á sínum ferli og hann var búinn að bíða lengi eftir því að fá að hampa bikarnum eftirsótta þegar FH varð meistari í fyrra. Heimir og FH mæta til leiks á svolítið öðrum forsendum í ár en áður þar sem þeir þurfa að verja titilinn og það er ætlast til þess að þeir geri það. „Það er nýtt en á móti kemur að 2003 þá var okkur spáð falli en við enduðum í öðru sæti. Við fylgdum því eftir með stæl og sýndum karakterinn sem býr í þessu liði. Ég kvíði því ekkert að mæta til leiks sem ríkjandi meistari og það er bullandi metnaður í hópnum og ég veit að menn ætla að verja þennan titil," sagði Heimir en segja má að FH hafi tekið við kyndlinum af KR en nánast hefur verið ætlast til þess að þeir yrðu meistarar síðustu ár. „Það getur verið að svo sé en við erum vissulega með sterkan og breiðan mannskap sem getur gert góða hluti. Við erum samt ekkert einir um það enda hafa mörg lið verið að styrkja sig. KR og Valur hafa styrkt sig mikið og eru líkleg til afreka þannig að það verður ekki auðvelt að verja titilinn," sagðu Heimir sem neitar því ekki að FH sé einnig orðið ansi vel mannað. „Við erum kannski með betri mannskap en í fyrra en að má samt ekki gleyma því að það tekur tíma að slípa liðið saman. Við höfum ekki verið að spila eins vel núna og við gerðum á sama tíma í fyrra." Það er mikið talað um að þetta verði tveggja liða mót í sumar og að ekkert lið geti barist um titilinn með FH og KR. Heimir er því ósammála. „Mér finnst alls ekki svona mikill munur á okkur og hinum liðunum. Við höfum til að mynda verið að spila við Val og þeir eru mjög massífir og hafa lagt okkur að velli. Ég hef ekki trú á því að við og KR munum stinga hin liðin af," sagði Heimir sem ætlar að leggja skóna á hilluna eftir sumarið eins og áður segir. Ólíkt mörgum öðrum finnst honum tilhugsunin um að hætta ekki vera erfið. „Það er alveg stórkostleg tilfinning að vita að þessu verður öllu lokið í lok sumars," sagði Heimir og hló dátt. Hann hefur aðeins í hyggju að yfirgefa íslenska knattspyrnu á einn hátt. „Ég vil enda þetta á góðum nótum í sumar og það kemst ekkert annað að en að vinna titilinn aftur með FH. Það er engin spurning að ég ætla að kveðja með titli. Annars hefði ég ekki tekið eitt ár í viðbót," sagði Heimir en hann lofaði því að honum myndi ekki snúast hugur færi svo að FH næði ekki takmörkum sínum í sumar. „Ég get alveg lofað fólki því að ég kem ekki aftur. Eini möguleikinn er að það væri í 3. deildinni með góðum félögum. Þá með liði þar sem það væri ekkert æft, aðeins spilað."
Íslenski boltinn Mest lesið Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Íslenski boltinn Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Íslenski boltinn Í beinni: Dortmund - Real Madrid | Úrslitastund á Wembley Fótbolti Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Íslenski boltinn Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Fótbolti Urðu að sætta sig silfrið þrátt fyrir magnaða endurkomu Handbolti Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór Fótbolti Mike Tyson frestar bardaganum á móti Jake Paul Sport McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana Golf Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Handbolti Fleiri fréttir „Erum á ákveðinni vegferð” Jafntefli í báðum leikjunum í Lengjudeildinni Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Í beinni: Dortmund - Real Madrid | Úrslitastund á Wembley Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Allt í skrúfunni hjá liði Arnórs Ingva og Gísli lagði upp fyrir Halmstad Fotis og Nat-vélin saman undir körfunni hjá Hamri næsta vetur Ólympíumeistari semur við NFL-lið Buffalo Bills Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador Urðu að sætta sig silfrið þrátt fyrir magnaða endurkomu Kolbeinn fagnaði í Íslendingaslag í Gautaborg Littler vann frumraun sína í Bandaríkjunum á undir tíu mínútum Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Harður stuðingsmaður Real Madrid: „Við elskum þessa keppni“ Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Fan Zone á hinum mikilvæga leik stelpnanna okkar á þriðjudaginn Vatnsskortur í Stokkhólmsmaraþoninu Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Cristiano Ronaldo grét eftir tap í gær Ekkert verður af kaupunum á Everton Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Mike Tyson frestar bardaganum á móti Jake Paul Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana Courtois byrjar úrslitaleikinn Dagskráin í dag: Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar Tveir Færeyingar til silfurliðsins „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Sjá meira