Áhyggjur af áhugaleysi kjósenda 27. apríl 2005 00:01
Forskotið í skoðanakönnunum er afgerandi og stjórnarandstaðan viðurkennir að hún eigi á brattann að sækja. En þegar aðeins vika er til kosninga eru stjórnendur kosningabaráttu Verkamannaflokks Tony Blair forsætisráðherra farnir að hafa áhyggjur af því að sigurvissan kunni að valda því að margir stuðningsmenn flokksins meðal kjósenda muni ekki telja taka því að mæta á kjörstað. Og þar með stefna sigrinum í hættu. Alan Milburn, aðalkosningastjóri Verkamannaflokksins, varaði stuðningsmenn flokksins við því í gær að kæruleysi af þeirra hálfu gæti kostað flokkinn tækifærið til að sitja að stjórnartaumunum þriðja kjörtímabilið í röð. Milburn sakaði Michael Howard, leiðtoga íhaldsmanna, um að reyna lævíslega að skapa falska öryggistilfinningu meðal væntanlegra kjósenda Verkamannaflokksins. Howard lét í þessari viku svo ummælt að Íhaldsflokkurinn væri "tvö-núll undir í hálfleik". "Þeir láta núna eins og þeir séu búnir að vera í þeirri von að það sé eini leikurinn sem þeir hafi í stöðunni til að eiga möguleika," sagði Milburn um þessa hernaðartækni íhaldsmanna. Hann benti á að einn aðalskipuleggjandinn að kosningabaráttu Íhaldsflokksins, Lynton Crosby, væri þekktur fyrir að beita þessari tækni, en hann hefur hjálpað ástralska forsætisráðherranum John Howard til að vinna kosningar fjórum sinnum í röð. Flestir stjórnmálaskýrendur eru á því að mjög ólíklegt sé annað en að Verkamannaflokkurinn sigri. Fylgi flokksins er jafnar dreift yfir allt landið en fylgi íhaldsmanna. Vegna þess hvernig einmenningskjördæmakerfið virkar veldur þetta því að Íhaldsflokkurinn þyrfti um tíu prósentustiga forskot til að eiga möguleika á sigri. En falli saman lítil kjörsókn og að hátt hlutfall fylgismanna Verkamannaflokksins sitji heima gæti það minnkað þingmeirihluta Verkamannaflokksins til muna.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira