Bush snupraði Sharon 12. apríl 2005 00:01
Snuprur en ekki stuðningur var það sem Ariel Sharon fékk á fundi með Bush Bandaríkjaforseta í gær. Bush lagði hart að Sharon að fylgja friðarvegvísinum og leggja bann við landnámi á svæðum Palestínumanna. Það var búist við því að Bush gerði athugasemdir við landnám gyðinga á svæðum Palestínumanna en að það yrði með jafn opinberum hætti og raun bar vitni kom nokkuð á óvart. Bush sagðist hafa sagt Sharon að hann vonaðist til að Ísraelar gripu ekki til ráðstafana í andstöðu við skyldur þeirra samkvæmt friðarvegvísinum enda stefndu þær lokaviðræðunum í hættu. Því bæri Ísraelum að leggja niður óheimilar varðstöðvar og efna skyldur sínar samkvæmt vegvísinum um landnemabyggðir á Vesturbakkanum. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði að hvað varðaði óheimilar varðstöðvar vildi hann ítreka að Ísrael væri ríki sem stjórnaðist af lögum. Hann myndi því efna loforð sín um að fjarlægja óheimilar varðstöðvar. Ísrael myndi einnig standa við skuldbindingar sínar varðandi landnemabyggðir samkvæmt friðarvegvísinum. Sharon er hins vegar á því að landnámið á Vesturbakkanum sé í lagi. Landnemabyggðirnar séu hluti Ísraelsríkis. Afstaða landnemanna sjálfra er á hreinu. David Yerusahlmi landnemi segir að enginn hafi tekið land sem hann hafi ekki átt tilkall til. Stríð brjótist út og tapist og land sé unnið. Slíkt gerist um heim allan. Mannkynssagan sýni að ríki skili ekki hernumdum löndum, einkum þegar engin raunveruleg trygging um öryggi sé fyrir hendi. Hann spyr hvaða ríkisstjórn myndi hætta lífi þegna sinna á grunni loforða Palestínumanna og svarar því til að það myndu hvorki Bandaríkjamenn né Evrópubúar gera og því skyldu þá gyðingar gera það.
Erlent Fréttir Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Sjá meira