Segja mótmæli Japönum að kenna 11. apríl 2005 00:01
Mótmæli og óeirðir í Kína um helgina eru Japönum að kenna, segja stjórnvöld í Peking, sem sögð eru hafa leyft mótmælin. Stjórnmálaskýrendur segja það geta komið í bakið á ráðamönnum. Mótmælin hafa vakið mikla athygli enda er vægast sagt sjaldgæft að fjölmenn mótmæli séu leyfð í Kína. Um helgina létu þó þúsundir illa í Peking, Chengdu, Guanzhou og Shenzhen og var ekki að sjá að óeirðalögregla gerði neitt til að stöðva lætin. Útibú japanskra fyrirtækja, japanskir veitingastaðir og fleira fengu að kenna á reiði Kínverja vegna nýrrar japanskrar kennslubókar þar sem Kínverjum finnst dregið úr frásögnum af grimmdarverkum Japana í seinni heimsstyrjöldinni, en í Peking segja stjórnvöld að Japanar hafi drepið 35 milljónir Kínverja í heimsstyrjöldinni. Fréttaskýrendur segja óeirðirnar ekki eins handahófskenndar og halda mætti. Stjórnvöld hafi í raun stjórn á framvindunni og sjái sér hag í að leyfa mótmælendum að láta ófriðlega. Ástæðan er sú að Kínverjar vilja koma í veg fyrir að Japanar fái fast sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Mótmælin gætu komið í bakið á stjórnvöldum í Peking, að mati sumra stjórnmálaskýrenda. Þeir segja að með þessum hætti sé óánægðum og óróaseggjum leyft að hamast gegn útlendingum en að lítið þurfið til að óánægja með ástandið innanlands blandist í lætin og þá gæti það reynst afdrifaríkt. Kínversk yfirvöld kveðast ekki bera neina ábyrgð á látunum um helgina heldur sé það einvörðungu Japönum að kenna hvernig samskiptum landanna er fyrir komið. Þeir verði að leggja sig fram við að bæta skaðann sem kennslubókin umdeilda hefur valdið.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira