Misnotuð og grafin lifandi 9. apríl 2005 00:01
Flórídabúar eru slegnir óhugnaði vegna morðs á níu ára stúlku sem var grafin lifandi eftir að hafa verið misþyrmt kynferðislega. Jessica Marie Lunsford var numin á brott þar sem hún lá sofandi í herbergi sínu í lok febrúar. Hún fannst ekki fyrr en mánuði seinna, þá látin og grafin rétt hjá heimili sínu. Morðingi hennar, John Couey, á sér þrjátíu ára glæpasögu og er margdæmdur kynferðisbrotamaður. Hann bjó, án vitundar lögregluyfirvalda, hjá hálfsystur sinni í næsta húsi við Jessicu. Eftir að Jessica hvarf fór í gang umfangsmikil leit og meðal annars var bankað upp á hjá hálfsystur Couey. Jessica gæti hafa verið á lífi þegar það gerðist. Líkskoðun leiddi í ljós að banamein Jessicu var köfnun. Couey hefur nú játað að hafa rænt henni, nauðgað og grafið lifandi. Lögregla var með Couey á skrá yfir þekkta kynferðisbrotamenn og bar honum skylda til þess að tilkynna reglulega um ferðir sínar og heimilisfang. Það hafði hann ekki gert í þessu tilfelli og hefur lögregla handtekið hálfsysturina og annað sambýlisfólk fyrir að tilkynna ekki um veru hans í húsinu. Hefðu þau gert það telur lögreglan að lífi Jessicu hefði hugsanlega verið þyrmt.
Erlent Fréttir Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent Fleiri fréttir Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Sjá meira