Annan snupraði mannréttindanefnd 7. apríl 2005 00:01
Kofi Annan snupraði Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna harkalega í dag og sagði að þröng eiginhagsmunaþjónkun aðildalandanna drægi úr trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna í heild sinni. Miklir mannréttindabrjótar svo sem Súdan og Zimbabwe sitja í nefndinni og koma í veg fyrir að þeirra eigin brot séu fordæmd. Mannréttindanefndinni er ætlað að fylgjast með því að mannréttindi séu virt um heim allan og vekja athygli á því þegar ríkisstjórnir brjóta á réttindum fólks. Í nefndinni sitja hins vegar fulltrúar ríkisstjórna sem eru þekktar fyrir ítrekuð og stórkostleg mannréttindabrot á eigin þegnum, svo sem Súdan, Zimbabwe, Kína, Rússland og Sádi-Arabía. Vera þessara landa í nefndinni kemur í veg fyrir að mannréttindabrot þeirra séu opinberlega fordæmd af Sameinuðu þjóðunum. Sem dæmi má nefna að Mannréttindanefndin lét hjá líða að fordæma voðaverk Súdanstjórnar í Darfur-héraði í fyrra þrátt fyrir að fyrir nefndinni lægju sönnunargögn um málið. Fulltrúi Súdans var í staðinn endurkjörinn inn í Mannréttindanefndina. Þá vakti það einnig hörð viðbrögð mannréttindasamtaka árið 2003 þegar Líbíustjórn fór með forsæti í nefndinni enda hefur stjórn Khaddafis verið þekkt fyrir ýmislegt annað en virðingu fyrir mannréttindum. Útlagaríki sem standa einangruð í alþjóðasamfélaginu, eins og t.d. Norður-Kórea og Kúba, eru hins vegar harkalega fordæmd af nefndinni á hverju ári. Annan vill nú umbylta þessu fyrirkomulagi og skipa nýja, minni fastanefnd með fulltrúum landa sem samstaða er um að virði mannréttindi innan eigin landamæra. Aðeins þannig geti þessi nefnd orðið að einhverju yfirvaldi og álit hennar skipt máli.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira