Gengur vonandi upp hjá Mjólku 6. apríl 2005 00:01
Skiptar skoðanir eru um það hvort hægt sé að reka mjólkursamlag utan greiðslumarkskerfis landbúnaðarins eins og stefnt er að með mjólkursamlaginu Mjólku. Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði, telur að um athyglisverða tilraun sé að ræða til að fá úr því skorið hvort þetta sé hægt. "Auðvitað hljóta allir, sérstaklega neytendur og skattgreiðendur, að binda vonir við að tilraunin gangi upp en það getur enginn svarað því nema þeir sem til þekkja," segir hann. "Hagfræðingar hafa gagnrýnt harkalega margt í rekstri landbúnaðarkerfisins, bæði innflutningshöftin og verndina sem í þeim felst og kostnaðinn sem lagður er á skattgreiðendur gegnum niðurgreiðslur og aðra styrki. Ef Mjólka getur starfað án styrkja þá verður það athyglisverð vísbending um að hægt sé að stunda landbúnað á Íslandi án þeirrar verndar sem landbúnaðurinn hefur núna. En þetta kerfi hjálpar Mjólku að því leyti að það er hátt verð á sumum tegundum osta vegna innflutningsverndar," segir Gylfi. Erna Bjarnadóttir, forstöðumaður félagssviðs Bændasamtakanna, telur að það sé ekki fjárhagslega arðbært að reka mjólkursamlag utan greiðslumarkskerfis landbúnaðarins. "Í fljótu bragði sé ég ekki grundvöll fyrir því," segir hún. "Þó að greiðslumark sem er fært á milli búa í dag sé hátt í verði þá þarf beingreiðslur til að standa undir því. Mér finnst mjög vandséð að það geti gengið upp fjárhagslega að starfrækja bú með 52,9 prósentum af því sem aðrir framleiðendur fá fyrir sína mjólk," segir hún. Ólafur Magnússon, einn af forsprökkum Mjólku, segir að stofnfé Mjólku sé 40 milljónir króna. Gert sé ráð fyrir umtalsverðu rekstrartapi fyrstu misserin meðan verið er að byggja upp fyrirtækið og greiða stofnkostnaðinn en reksturinn verði jákvæður á sjötta til sjöunda ársfjórðungi frá stofnun.
Fréttir Innlent Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Innlent Fékk milljón vegna afmælis kattarins Innlent Biður þingmenn að gæta orða sinna Innlent „Ísland á betra skilið“ Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Innlent Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Innlent Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Innlent Fleiri fréttir Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Sjá meira