Innlent

Nýtt aðalsímanúmer borgarinnar

Nýtt aðalsímanúmer Reykjavíkurborgar 4 11 11 11 var tekið í notkun í gær. Við sama tækifæri tók Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri í notkun símaver borgarinnar. Markmið eins þjónustunúmers fyrir Reykjavíkurborg er að bæta þjónustu við íbúa og einfalda leiðir að upplýsingum og þjónustu, en í hverri viku berast Reykjavíkurborg yfir 22 þúsund símtöl. Símaverið er opið frá klukkan 8 til 17 en samningar standa yfir um sólarhringsvöktun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×