Innlent

Enn frekari stækkun Norðuráls

Með samkomulagi Norðuráls, dótturfyrirtækis Century Aluminum Company, við Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja, um kaup á 70 megavöttum af viðbótarraforku fyrir álver fyrirtækisins á Grundartanga, verður álverinu gert kleift að auka framleiðsluna í 260 þúsund tonn árlega á síðari hluta ársins 2008. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðuráli í dag. Samkomulagið, sem verður væntanlega undirritað formlega í næsta mánuði, er háð því að ákveðin skilyrði verði uppfyllt. Álframleiðsla Norðuráls nemur nú 90 þúsund tonnum á ári. Í maí á síðasta ári hófust framkvæmdir við stækkun verksmiðjunnar upp í 212 þúsund tonn en gert er ráð fyrir enn frekari stækkun í 220 þúsund tonn á árinu 2007.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×