Kosningarnar gengu vel 31. mars 2005 00:01
Þingkosningarnar í Zimbabwe í dag gengu vel þrátt fyrir hrakspár. Fréttaskýrendur eru hins vegar á einu máli um að ekkert verði að marka úrslitin sökum víðtæks kosningasvindls. Afríkuríkið Zimbabwe skaut upp kollinum í vestrænum fjölmiðlum fyrir nokkrum árum þegar forseti landsins, Robert Mugabe, ákvað að reka hvíta bændur af jörðum sínum og þagga harkalega niður í stjórnarandstöðunni. Í kjölfarið hafa landsmenn mátt þola hungursneyðir og hörmungar. Sólveig Ólafsdóttir, sem stödd er í Zimbabwe og var líka í landinu í síðustu kosningum, segir mjög ólíku saman að jafna. Þá hafi kosningabaráttan verið afar ósvífin og vegatálmar um alla borg en nú sé allt rólegt. Það sé eins og ríkisstjórnin sé miklu afslappaðri gagnvart stjórnarandstöðunni og fullviss um sigur. Ásakanir um kosningasvindl eru háværar, bæði að fólki sé mútað með matargjöfum sem og að mörg hundruð þúsund látnir einstaklingar hafi verið skráðir sem kjósendur. Mugabe blæs hins vegar á alla gagnrýnisraddir, sérstaklega erlendis frá. „Ég þarf ekki að samræma neitt gagnvart Vesturveldunum. Ég er forseti landsins. Við höfum okkar eigin reglur hérna og erum sjálfstæð. Þau eiga ekki að skipta sér af sjálfstæði okkar. Það er allt og sumt,“ segir Mugabe. Sólveig segir að þrátt fyrir að nú fari lítið fyrir stjórnarandstöðunni og Morgan Tsvangirai, leiðtoga hennar - sem skýrist af því að fjölmiðlum stjórnarandstöðunnar hefur verið lokað - þá njóti Tsvangirai mikils fylgis almennings. Og hún spáir því að soðið geti upp úr þegar úrslitin verða kunn.
Erlent Fréttir Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fleiri fréttir Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent