Segir fólk hafa orðið mjög hrætt 28. mars 2005 00:01
Birna Halldórsdóttir, sem er á vegum Rauða krossins í Banda Aceh á Súmötru, segir fólk hafa orðið mjög hrætt þegar skjálftinn reið yfir eyjuna fyrr í dag enda séu flestir minnugir flóðbylgjunnar á annan dag jóla. Birna segjir að jörð hafi skolfið öðru hverju í héraðinu. Klukkan rúmlega fjögur hafi jörðin byrjað að skjálfa og hún hafi haldið að þetta yrði eins og venjulega en svo hafi jörðin hrist enn meira og lengur. Það hafi endað með því að hún hafi hlaupið út úr húsi eins og aðrir í húsunum í kring. Fólk hafi tekið föggur sínar því það hafi haldið að önnur flóðbylgja væri á leiðinni þar sem jarðskjálftinn hafi verið svo snarpur. Birna segir að í um hálftíma eða 45 mínútur hafi verið algjör ringulreið í borginni en nú séu hlutirnir að róast. Aðspurð hvort fólk sé mjög hrætt segir Birna að fólk í því hverfi sem hún búi hafi orðið fyrir áföllum í flóðbylgjunni annan dag jóla og það sé mjög hrætt. Aðspurð um skemmdir á svæðinu segir Birna ekki halda að þær hafi orðið miklar. Húsið sem hún búi í sé í lagi en rafmagnið hafi farið. Birna segir fólk á svæðinu enn hrætt við að ný flóðbylgja komi þegar jörð skelfi eins mikið og hún gerði í dag. Hún segir að lögreglumenn fari um hverfið hennar og vari fólk við ef von sé á flóðbylgju með því að skjóta upp í loftið.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Sjá meira