Sport

Shaun Wright-Phillips meiddur

Shaun Wright-Phillips, leikmaður Manchester City, meiddist illa á hné í leik gegn Norwich á mánudagskvöldið. Einhverjar líkur eru á því að grípa þurfi til aðgerðar til að Shaun nái fullum bata. Er þetta mikið áfall fyrir City því kappinn hefur verið burðarás í liðinu. "Þetta er áfall fyrir okkur," sagði Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City. "Samkvæmt upplýsingum frá læknum okkar þá mun hann vera orðinn leikfær á ný eftir sex til átta vikur. Hann er í góðum höndum og er fagmaður í því sem hann tekur sér fyrir hendur. Hann verður fljótur að komast í form," sagði Keegan. City situr í 10. sæti ensku deildarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×