Ný bók að koma og starfslok í vor 30. janúar 2005 00:01
Eftir helgina kemur út ný bók eftir Pál Skúlason, háskólarektor og prófessor í heimspeki, sem gefin er út á fjórum tungumálum í senn, íslensku, ensku, frönsku og þýsku. Bókin heitir Hugleiðingar við Öskju en í henni leggur Páll út af stórbrotnu náttúrufari við Öskju og veltir upp hugleiðingum um eðli trúarbragða og stöðu mannsins í heiminum. Grundvöllur trúarinnar Þó svo að Páll noti Öskju sem útgangspunkt í bók sinni segir hann fólk vissulega geta orðið fyrir þeirri reynslu af náttúrunni sem í henni er lýst við allt aðrar aðstæður. "Eins gæti eitthvað örsmátt í náttúrunni vakið þessa reynslu af sjálfstæðum veruleika óháðum vitund okkar, fullum af leyndardómum," segir hann, en slíkri upplifun fylgir gjarnan einnig vitundin um eigin smæð, vanmátt og takmarkanir. "Við fæðumst þarna inn í heim sem er óendanlega stórkostlegur ef svo má orða það," segir hann og telur að þarna sé komin tilfinningin sem liggi trúarbrögðum til grundvallar. "Andspænis þessum sjálfstæða náttúrulega veruleika uppgötvum við okkur sem vitandi verur og líf okkar verður fólgið í því að mynda tengsl, eða samband, við þennan veruleika og okkar á milli. Þetta samband er andlegt og þar með eiginlega af trúarlegum toga, en svo getur það auðvitað þróast á marga ólíka vegu." Páll segist ekki óttast að fólki finnist vegið að trú sinni með því að skilgreina trúarþörfina á þennan hátt. "Ég er heldur ekki að fjalla um hin breytilegu trúarbrögð, heldur um ákveðna sammannlega reynslu. Ef eitthvað er, þá er í þessu fólgin ákveðin viðurkenning á mikilvægi trúarbragða almennt, hver sem þau eru." Hugleiðingar við Öskju eru hins vegar ekki bara heimspekirit heldur einnig nokkurs konar handbók ferðafólks, ríkulega skreytt ljósmyndum Guðmundar Ingólfssonar. "Ég vona að hún gagnist fólki þegar það ferðast um landið," segir Páll og vísar til þess hvernig fólk leitast við að hverfa úr sínu hversdagslega umhverfi í fríum í leit að endurnýjun, hvíld og hressingu. "Þá virðist gjarnan vera freistandi að reyna að enduruppgötva eða endurupplifa náttúruna. Í því sambandi getur auðvitað verið gagnlegt fyrir fólk að hafa einhvern texta til að íhuga." Meira fé í skólana Líta má á útkomu nýrra bóka sem ákveðin tímamót, en Páls Skúlasonar bíða önnur tímamót í vor þegar hann lætur af starfi rektors Háskóla Íslands. "Ég fer aftur í prófessorsstarfið og mín fræði," segir hann og kveður það munu verða spennandi að koma aftur að fræðunum. "Það er náttúrlega sá heimur sem ég hef verið að vinna í," segir hann og játar því að vera þegar farinn að leggja í huganum grunn að næstu bókum. "Maður er auðvitað alltaf að því, en það er kannski fullsnemmt að segja til um þá hluti." Páll segist mjög sáttur við tíð sína sem rektor, en hann hefur gegnt starfinu í um átta ára skeið. "Þetta hefur verið afskaplega skemmtilegur tími og tilbreytingaríkur. Starfið er fjölbreytt og viðfangsefnin mörg og ólík. Þarna fékk ég tækifæri til að kynnast háskólafólki og háskólanum á alveg nýja vegu og ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að vera í þessu hlutverki." Skólinn hefur í rektorstíð Páls gengið í gegnum miklar breytingar og vaxið, bæði hvað varðar fjölda nemenda og námsframboð. Páll segir mestu nýmælin fólgin í auknu framboði meistara- og doktorsnáms. "Þegar ég er að byrja voru um 100 nemendur í meistaranámi en núna eru um 1.500 í meistara- og doktorsnámi. Þetta er gjörbylting í starfi Háskólans og hefur verið stórkostlegt ævintýri," segir Páll og telur óvíst að þjóðfélagið hafi enn uppgötvað hversu mikla þýðingu það hafi að hafa að bjóða svo öflugt nám. "Þessi vöxtur allur kallar vitanlega á meira fé, aukið húsnæði og bættar aðstæður, um leið og nýta þarf peninga og húsnæðið sem fyrir er betur en nokkru sinni. Það höfum við reynt að gera um leið og við höfum kallað eftir meiri fjármunum. Hins vegar er alveg ljóst að þjóðfélagið þarf að leggja mun meira í háskólana. Þessi aukna menntun í meistara- og doktorsnámi er einfaldlega framtíðin og krafa þjóðfélagsins er að stofnanir eins og Háskólinn sinni þessum verkefnum sem síðan skila sér með óendanlega breytilegum og margvíslegum hætti út í þjóðfélagið."
Innlent Menning Mest lesið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Gull og gimsteinar leynast víða Lífið Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Fleiri fréttir „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Sjá meira