Sport

Vala og Örn fá ekki lengur A-styrk

Afrekssjóður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands tilkynnti í gær styrkveitingar sínar fyrir árið 2005. Alls nema þær um 47 milljónum króna til einstaklinga og sérsambanda en Örn Andrésson, formaður sjóðsins, sagði á blaðamannafundi í gær að sjóðurinn ætti á bilinu fimmtán til sextán milljónir sem hann myndi hugsanlega deila út á árinu ef tilefni gæfist til. Athygli vekur að aðeins tveir íþróttamenn, frjálsíþróttakonan Þórey Edda Elísdóttir og fimleikamaðurinn Rúnar Alexandersson, fá A-styrk en þau tvö báru af öðrum þátttakendum á Ólympíuleikunum í Aþenu. Fjórir íþróttamenn, Vala Flosadóttir, Örn Arnarson, Jón Arnar Magnússon og júdókappinn Bjarni Skúlason, sem voru á A-styrk á síðasta ári, hlutu ekki náð fyrir augum sjóðsins og fá ekki styrk þetta árið. Stefán Snær Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, sagði að með þessu væri verið að koma til móts við þá gagnrýni sem hefði verið uppi á borðinu að undanförnu um að erfiðara væri að detta út af styrkjalistanum en að komast á hann og því yrði breytt. "Við munum verða með stífara eftirlit með hverjum þeim sem fær styrki hjá okkur," sagði Stefán en því hefur víða verið haldið á lofti að styrkjum þeim sem sundkappinn Örn Arnarson og frjálsíþróttakonan Vala Flosadóttir hafa verið á undanfarin þrjú ár án þess að sýna nokkuð hafi verið illa varið. Örn og Vala hafa hvort um sig fengið rúmar tíu milljónir frá Afrekssjóði undanfarin fimm ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×