Sigþór aftur í Val 8. janúar 2005 00:01
Knattspyrnumaðurinn Sigþór Júlíusson hefur gert munnlegt samkomulag við Valsmenn um að spila með þeim næstu tvö árin. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið í gær og sagði að það yrði skrifað undir samninginn við Sigþór á morgun, mánudag. Sigþór, sem hefur leikið með KR-ingum síðan árið 1997, spilaði ekki einn einasta leik með KR-ingum á síðasta tímabili vegna meiðsla á hné en er á góðri leið með að ná fullum styrk á nýjan leik. Sigþór sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hann hefði spilað sextán leiki með háskólaliði sínu í Bandaríkjunum síðastliðið haust og þótt hann væri enn í endurhæfingu hefði hann ekki trú á því að meiðslin myndu koma til með að há honum næsta sumar. Aðspurður um ástæðu þess að hann valdi Val sagði hann félagið einfaldlega hafa sýnt mestan áhuga. "Þeir vildu ólmir fá mig á meðan mér fannst lítill áhugi vera fyrir hendi hjá KR-ingum," sagði Sigþór sem lék með Valsmönnum tímabilin 1995 og 1996. Hann hefur spilað 144 leiki í efstu deild með KA, Val og KR og skoraði þeim tólf mörk. Sigþór, sem verður þrítugur á þessu ári, á að baki tvo A-landsleiki. Hann er fimmti leikmaðurinn sem gengur í raðir Valsmanna frá því að tímabili lauk í haust en áður höfðu þeir Atli Sveinn Þórarinsson, Guðmundur Benediktsson, Kjartan Sturluson og Steinþór Gíslason skrifað undir samning við Hlíðarendaliðið auk þess sem nýr þjálfari, Willum Þór Þórsson, stýrir liðinu á komandi tímabili.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Drykkjulæti trufluðu leik á Wimbledon Sport Frá Midtjylland til Newcastle Fótbolti Þóttist vera með krabbamein með iPhone snúru upp í nefinu Sport Heimir mjög ósáttur við dómarann: „Þetta er bara dýfa“ Sport Dreymdi um dans og söng inni í klefa: „Erfitt að koma í orð hvernig manni líður“ Fótbolti Féllu á lyfjaprófi vegna gúmmíkurls í gervigrasinu Fótbolti Elanga að ganga til liðs við Newcastle Fótbolti Sveindísi var enginn greiði gerður Fótbolti Szczesny ekki hættur enn Fótbolti Vörn Grindavíkur áfram hriplek Fótbolti Fleiri fréttir Drykkjulæti trufluðu leik á Wimbledon Frá Midtjylland til Newcastle Dreymdi um dans og söng inni í klefa: „Erfitt að koma í orð hvernig manni líður“ Heimir mjög ósáttur við dómarann: „Þetta er bara dýfa“ Vörn Grindavíkur áfram hriplek Endurkomujafntefli heldur Portúgölum á lífi Elanga að ganga til liðs við Newcastle Szczesny ekki hættur enn Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-1 | Jafntefli vonbrigði fyrir alla Heimsmeistararnir í ham gegn Belgíu Ellefu reiðhjólum stolið frá Cofidis liðinu 47 ára boxhetja snýr aftur í hnefaleikahringinn Segir Arsenal vera að fá til sín „heila framtíðarinnar“ Heppni hafi skilað sigri á „of árásargjörnum Íslendingum“ Kláraði sjötíu pylsur á tíu mínútum Blikarnir í beinni frá Albaníu Miðasala FIFA gagnrýnd: Einn borgar 60 þúsund en annar 1.300 fyrir eins miða Mun taka stöðuna með fólkinu sem ræður hjá KSÍ Ungur Njarðvíkingur fékk hjálp frá systur sinni til að heiðra minningu Jota Finna stuðning hver hjá annarri: „Fólki má bara finnast það sem það vill“ KR semur við ungan bandarískan framherja Sveindísi var enginn greiði gerður Aron ráðinn til FH Ísold vann veðmálið örugglega og sendi Aron út í sjó Landsliðskonurnar neita að æfa Heitt undir Þorsteini: Þetta eru enn ein vonbrigðin núna Sjáðu Hallgrím Mar klára KR-ingana á fjórum mínútum Þarf að gefa frá sér sætið sitt á heimsleikunum í CrossFit Þrettán ára Íslendingur í Noregi stefnir á Formúlu 1 Sjá meira