Fyrsta óveður vetrarins 28. október 2005 19:06
Fyrsta óveður vetrarins á Suður- og Vesturlandi skall á í dag. Á Kjalarnesi fór vindhraði í 42 metra á sekúndu í hviðum og í Vestmannaeyjum hafa björgunarsveitarmenn hjálpað fólki við að losa bíla sína úr snjósköflum. Vest var veðrið á Suður- og Vesturlandi í dag þó það væri slæmt nánast um allt land. Innanlandsflug hefur legið niðri og hefur aðeins ein flugvél á leið til Færeyja tekið á loft á Reykjavíkurflugvelli. Síðasta flugathugun var klukkan sautján tíu og verður næst athugað með flug klukkan átta í kvöld en litlar líkur eru taldar á að nokkuð verði flogið. Veðrið var einna verst á Kjalarnesi þar sem hvassviðrið var mikið en vindur fór upp í 38 til 42 metra á sekúndu í hviðum. Strætisvagn fauk út af veginum og skemmdist talsvert mikið. Lögreglan var ekki kölluð til vegna þessa umferðaróhapps en talið er að enginn hafi slasast. Fjórir voru fluttir á sjúkrahús eftir að jeppi valt á veginum sunnan við Hvalfjarðargöngin laust eftir hádegið. Tveir farþeganna festust í bílnum við veltuna svo nota þurfti klippur til að ná þeim lausum. Að sögn læknis á slysadeild er engin fjórmenninganna alvarlega slasaður. Vesturlandsvegur var lokaður um tíma vegna slyssins. Veðrið hefur víðar verið vont. Í Árnessýslu og Rangárvallasýlu hefur verið blint vegna kófs í allan dag en snjór hefur ekki náð að festast á vegum. Seinni part dags hefur líka verið blint vegna kófs á Hellisheiði og í Þrengslum. Í Vestmanneyjum hefur björgunarsveitin aðstoðað lögreglu við að losa fasta bíla. Á sunnanverðu Snæfellsnesi hefur verið illfært vegna óveðurs. Klettsháls er ófær en þar er blindbylur. Það sama er að segja um Hrafnseyrarheiði en þar hefur ekki verið lagt í að moka. Éljagangur og skafrenningur hefur verið á vegum á Norður- og Austurlandi en þeir eru flestir færir.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Sjá meira