Innlent

Endurnýjaður réttur með helgarferð til útlanda

Lögmaður 2B, Sveinn Andri Sveinsson, segir viðbúið að verkamenn á vegum fyrirtækisins verði sendir úr landi eftir að Vinnumálastofnun neitaði þeim um atvinnuleyfi og snúi svo von bráðar aftur.
Lögmaður 2B, Sveinn Andri Sveinsson, segir viðbúið að verkamenn á vegum fyrirtækisins verði sendir úr landi eftir að Vinnumálastofnun neitaði þeim um atvinnuleyfi og snúi svo von bráðar aftur.

Vinnumálastofnun synjaði beiðni starfsmanna 2B ehf. um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem hér hafa verð við störf á hennar vegum. Verkamenn á vegum 2B hafa starfað hjá nokkrum fyrirtækjum hér á landi, en án atvinnuleyfa. Slíks leyfis þarf ekki að afla fyrir þá sem hér eru skemur en þrjá mánuði á ferðamannaáritun.

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnuálastaðfestir að ekki hafi verið gefin út leyfi til 2B áður.

Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður 2B, segir fátt að gera við synjun Vinnumálastofnunar, en þó verði skoðað hvort ákvörðunin verði kærð.

"Ætli verði ekki bara notað þetta klassíska úrræði að menn fari í helgarferð til Köben og komi svo aftur," segir hann, en við það myndi hefjast nýtt þriggja mánaða tímabil ferðamannaáritunar.

Fimm félög innan samiðnar hafa krafið sex fyrirtæki um uppýsingar um vinnutíma og kjör starfsmanna en þau eru öll með menn frá 2B í vinnu. Fyrirtækin eru Suðurverk á Káranhnjúkum, Dynkur í Mosfellsbæ, Völvusteinn á Akureyri, Timburðjan á Akureyri og svo Fagíði í Kópaog Ístak í Reykjavík, bæði með starfsmenn við Grundartanga.

Þá hafa aðildarfélög innan Samiðnar og Starfsgreinasambands Íslands sent frá sér tilkynningu um að þau séu reiðuúin "að gera allt sem í þeirra valdi stendur" til að liðka fyrir því að erlendu starfssem verið hafa hér á vegum 2B fái atvinnuhjá fyrirtækjunum sem þeir starfa hjá "eða eftir atöðrum fyrirtækjum."

Þá segjast félögin tilbúin til samvinnu við Vinnumálastofnun og hlutaðeigandi fyrirtæki um "farsæla lausn" mála starfsmannanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×