Enn á lífi eftir 36 klukkustundir 30. mars 2005 00:01
Mun færri virðast hafa farist í jarðskjálftanum í Bengalflóa á sunnudaginn en í upphafi var óttast. Slökkviliðsmenn björguðu í gær manni úr húsarústum, einum og hálfum sólarhring eftir að skjálftinn reið yfir. Hjálpargögn eru farin að berast en þó er erfitt um aðdrætti. Hjálparstarf er hafið af krafti á Nias-eyju, sem verst varð úti í jarðskjálftanum á sunnudaginn. Fyrstu erlendu hjálparsamtökin komu á svæðið í gær með vistir og lyf. Aðstæður eru erfiðar því veður hefur verið slæmt og eini flugvöllur eyjarinnar skemmdist mikið í jarðhræringunum. Sameinuðu þjóðirnar og önnur samtök hyggjast flytja birgðir sem komið var til hamfarasvæða á Súmötru til Nias-eyju. Í gær björguðu franskir slökkviliðsmenn manni á þrítugsaldri úr húsarústum en þar hafði hann dúsað í hálfan annan sólarhring. Sjónvarpsviðgerðamaðurinn Jansen Silalahi var með meðvitund þegar braki var lyft ofan af honum með bíltjakki. Hann brosti og veifaði Frökkunum en þeir höfðu áður verið við störf í Aceh-héraði á Súmötru á vegum samtakanna Slökkviliðsmenn án landamæra. Háttsettur erindreki hjá Sameinuðu þjóðunum sagði gögn benda til að 518 manns hefðu týnt lífi, þar af 500 á Nias-eyju. Indónesísk stjórnvöld telja hins vegar að í það minnsta þúsund manns hafi farist. Óttast hafði verið um íbúa Banyak-eyjar, sem er skammt frá Nias-eyju, en engar fréttir bárust þaðan lengi vel. Indónesískur embættismaður sagðist hins vegar hafa heimsótt eyjuna í gær og þar hefði enginn beðið bana. Á hinn bóginn þyrfti að koma matvælum til eyjarskeggja hið fyrsta því talsvert tjón hefði orðið í umbrotunum. Nokkuð hefur verið um gripdeildir í Gunung Sitoli, höfuðstað Nias-eyju, síðustu daga. Svo virðist sem neyðin reki fólkið til slíkra verka því matur hefur verið af skornum skammti. Rafmagns- og vatnsskortur hefur hamlað starfsemi sjúkrahúsa og er óttast að farsóttir geti breiðst út af þeim sökum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira