Norskur Malagafangi 7. apríl 2005 00:01
Lögregla á Spáni hefur handtekið norskan mann, sem grunaður er um að vera forsprakki glæpagengis sem rændi banka í Stafangri í fyrra, þar sem lögreglumaður var skotinn til bana. Maðurinn er 29 ára og heitir David Alexander Toska, en hann var handsamaður í Malaga á Suður-Spáni, nákvæmlega upp á dag ári eftir að ránið var framið, en það var eitt það stærsta og bíræfnasta sem framið hefur verið í Noregi. Toska er sakaður um að hafa farið fyrir um tólf manna ræningjahóp sem stal 58 milljónum norskra króna, andvirði yfir 560 milljóna íslenskra, úr seðladreifingarmiðstöð banka á Stafangurssvæðinu, í miðborg Stafangurs snemma morguns 5. apríl 2004. Annar maður, Dani Bungard að nafni, var handtekinn ásamt Toska, að sögn spænsku lögreglunnar. Samkvæmt heimildum fjölmiðla var Bungard eftirlýstur vegna fíkniefnabrota en ekki í tengslum við bankaránið. Framsalsbeiðni norskra yfirvalda verður tekin fyrir af dómstól í Madríd en henni hyggst Toska verjast af kjafti og klóm, að því er fram kemur á fréttavef Aftenposten.
Erlent Fréttir Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fleiri fréttir Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent