Innlent

Agavandamál í skólum hér á landi

 

Stjórnvöld í Bretlandi ætla að gefa kennurum frekari lagaheimildir til að ráða við nemendur og refsa þeim sem haga sér illa. Agavandamál eru altöluð á meðal kennara hér á landi og getur tekið hátt í hálfa kennslustund að koma ró á bekkinn.

Í Bretlandi á að gefa kennurum lagaheimildir svo þeir geti beitt réttlætanlegu valdi til að aga nemendur sem setja heilu bekkina á annan endann vegna óláta. Í Íslandi í bítið í morgun mættu tveir grunnskólakennarar sem segja mikið rætt um agavandamál barna í skólum hér á landi.

Ólöf Júlíusdóttir grunnskólakennari sagði í Íslandi í bítið í morgun að í fjörutíu mínútna kennslustund geti tekið allt að tuttugu mínútur að fá börn til að haga sér þannig að hægt sé að hefja kennslu. Einnig þurfi stundum heilmikið að hafa fyrir því að fá börn til að taka upp bækurnar sínar, hvað þá opna þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×