Fréttablaðið lét Þórð vita 14. mars 2005 00:01
Það vakti athygli að landsliðsþjálfararnir, Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, skyldu ekki velja Þórð Guðjónsson í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Króötum og Ítölum. Það vekur ekki síður athygli að þeir sáu sér ekki fært að tilkynna Þórði um ákvörðun sína heldur kom það í hlut blaðamanns Fréttablaðsins sem hringdi í Þórð seinni partinn í gær. "Er búið að tilkynna hópinn?" sagði Þórður undrandi þegar blaðamaður Fréttablaðsins sagði honum frá landsliðsvalinu. "Ég hafði ekkert heyrt frá neinum og þú ert að segja mér nýjar fréttir. Það er alveg á hreinu að ég er ekki valinn út af lélegri frammistöðu með landsliðinu. Þetta kemur mér virkilega á óvart og svolítið aftan að mér. " sagði Þórður sem var greinilega nokkuð brugðið við tíðindin. "Ég er sár yfir því að það hafi ekki verið talað við mig og að ég þurfi að fá fréttirnar frá ykkur." Þórður sagðist telja ástæðuna fyrir vali landsliðsþjálfaranna vera sú að hann væri ekki að spila reglulega með sínu liði. Ef það er ástæðan kemur hún nokkuð á óvart því Þórður hefur oft leikið vel með landsliðinu þótt hann hafi ekki leikið reglulega. Nú síðast gegn Möltu í október þegar Þórður var í byrjunarliðinu nýstiginn upp úr meiðslum. Ásgeir landsliðsþjálfari á þátt í því að Þórður fór til Stoke enda stjórnarmaður hjá félaginu og Þórður er heldur ekki sáttur við hvernig það hefur farið. "Ásgeir á stóran hlut í því að ég kom hingað," sagði Þórður en seldi Ásgeir honum það að ef hann kæmi fengi hann að spila? "Já, í raun og veru. Það er ástæðan fyrir því að ég kom til Stoke enda lækkaði ég mig mikið í launum með því að koma hingað með það fyrir augum að ég fengi tækifæri," sagði Þórður en finnst honum að hann hafi verið hafður að fífli? "Nei, ég myndi ekki orða það þannig en það er margt skrítið við þetta."
Íslenski boltinn Mest lesið Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Sport Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Fótbolti Fleiri fréttir Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Sjá meira