Erlent

Borin kennsl á sprengjumann

Lögreglan í Egyptalandi hefur borið kennsl á manninn, sem gerði sprengjuárás á fjölmennum ferðamannastað í Kaíró á fimmtudaginn. Þrír erlendir ferðamenn fórust í árásinni, auk sprengjumannsins. Lögreglan vill ekki gefa upp nafn mannsins, en segir hann vera frá fátæku svæði skammt norður af Kaíró. Þrír aðrir menn hafa verið handteknir, og eru þeir grunaðir um að hafa átt hlut að árásinni. Ekki er vitað til þess að mennirnir fjórir tengist neinum hryðjuverkasamtökum. Þessi árás á fimmtudaginn var sú fyrsta í sjö ár sem gerð er á erlenda ferðamenn í Kaíró. Algengt hefur þó verið að árásir séu gerðar á vinsæla ferðamannastaði í Egyptalandi. Síðast í október fórust 34 ferðamenn á Sínaískaga þegar gerðar voru sprengjuárásir á nokkur hótel á því svæði. Ferðaþjónustan í Egyptalandi beið mikinn hnekki árið 1997 þegar 68 manns fórust í tveimur árásum, annars vegar í miðborg Kaíró og hins vegar í bænum Luxor.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×