Tugþúsundir barna í vændi 10. apríl 2005 00:01
Talið er að tugþúsundir rússneskra barna séu neyddar í vændi og framleiðslu barnakláms. Mikil fátækt og eymd gerir heimilislaus börn að auðveldum fórnarlömbum klámiðnaðarins í Rússlandi. Efnahagslegir erfiðleikar í Rússlandi, vaxandi fátækt og upplausn hefur leitt meðal annars til þess að vændi meðal barna hefur snaraukist. Heimilislaus börn sem betla á götum úti og við lestarstöðvar eru auðveld fórnarlömb glæpamanna. Fréttamenn Sky náðu myndum um hábjartan dag af mönnum sem dreifðu auglýsingapésum fyrir vændisstarfsemi, þar sem börn eru meðal annars auglýst, en þau sögð eldri en þau eru. Myndir náðust einnig af barnungum súlkum sem héldu sig við lestarstöðvar og falbuðu sig fyrir innan við 20 dollara. Hjálparsamtök hafa sett á fót neyðarskýli fyrir þessi börn. Kasusha er eitt barnanna. Hún er með lekanda, sárasótt og lifrarbólgu C. Hjálparstarfsfólk segir að ef melludólgar kæmust að því að hún er einnig HIV-jákvæð yrði hún sennilega myrt. Kasusha segir karlmenn vera viðbjóðslega; þeir séu hreinlega skrímsli. Allir þarfnist einhvers frá öðrum, sérstaklega frá ungum börnum. Anya er tólf ára. Henni var rænt úti á götu og nauðgað. Hún segir að menn í bíl sem keyrði fram hjá henni hafi boðið henni far en hún afþakkað. Þá hafi þeir dregið hana inn í bílinn og keyrt með hana í burtu. Hún vill ekki tilgreina staðinn sem þeir fóru með hana á. Jenya er enn eitt barnanna sem lent hafa í hremmingunum. Hún segist vita til þess að jafnvel tveggja og þriggja ára gömul börn drykkjusjúkra foreldra hafi verið misnotuð gegn greiðslu og það tekið upp á myndband.. Samkvæmt rannsóknum hjálparsamtaka kemur eitt mesta magnið af því barnaklámi sem til er í heiminum frá Rússlandi. Ekki er vitað hversu mörg börn verða fyrir slíku ofbeldi í landinu en reiknað er með að þau skipti tugþúsundum. Samkvæmt sömu rannsóknum er einstaklega auðvelt að nálgast barnaklám í Rússlandi. Framleiðslan og eftirspurnin er þó áberandi mest í Moskvu og Pétursborg.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira