Magnús rekinn frá KR 25. júlí 2005 00:01
Magnúsi Gylfasyni var í gær sagt upp störfum sem þjálfari meistaraflokks KR. Magnús tók við liðinu í nóvember á síðasta ári og gerði þá þriggja ára samning við félagið. KR hefur gengið illa það sem af er sumri og er sem stendur í sjötta sæti í deildinni með þrettán stig eftir tólf leiki. Sigursteinn Gíslason hefur verið ráðinn þjálfari í stað Magnúsar og verður Einar Þór Daníelsson, fyrrverandi leikmaður KR, aðstoðarmaður hans. Þeir léku báðir með KR á sínum tíma og hafa þjálfað annan flokk félagsins með góðum árangri í sumar. "Ég og Einar Þór þekkjumst vel og höfum starfað saman að þjálfun hjá öðrum flokki KR. Við spiluðum saman hjá KR og unnum nokkra titla með félaginu. Við vonumst auðvitað til þess að geta fengið liðið til þess að spila betur en það hefur gert. Það er líka kostur að við þekkjum ágætlega til eiginlega allra leikmannanna." Einar Þór Daníelsson, nýráðinn aðstoðarþjálfari KR, segir erfitt að taka við KR í þessari aðstöðu en jafnframt spennandi. "Það er alltaf erfitt að reka þjálfara á miðju tímabili. Þar að auki er Magnús vinur minn þannig að þetta er sárt að því leytinu til. En mikil áskorun fyrir mig." Aðspurður um framhaldið sagði hann að breytinga væri að vænta. "Við eigum alfarið eftir ráðfæra okkur um framhaldið, ég og Sigursteinn. En það verða breytingar, það er alveg öruggt." Sigursteinn segist ekki hafa getað gert annað en taka við liðinu. "Það kom aldrei neitt annað til greina en taka við þessu starfi þegar það bauðst. Starfið er mikil áskorun fyrir mig og viðurkenning á því starfi sem ég hef verið að vinna að undanförnu, ásamt Einari Þór. Þetta kom óvænt upp. Ég heyrði af þessu eftir leikinn á móti Keflavík en það var ekkert staðfest við mig. Svo var ég beðinn um að taka þetta að mér daginn eftir leikinn og ég ákvað slá til. Ég hef ekki skrifað undir neinn samning enn þá en ég ætla að einbeita mér að því að klára þessa sex leiki sem eftir eru af deildarkeppninni með sæmd. Það býr mikið í liðinu og mitt verkefni að ná meiru út úr því en náðst hefur hingað til." Kristján Finnbogason, markvörður og fyrirliði KR, frétti af þjálfaraskiptunum fyrstur leikmanna. "Ég var látinn vita af þessu eftir fund stjórnar KR með Magnúsi. Ég ræddi þetta aðeins við hann, en það eina sem hægt er að gera núna er að horfa fram á veginn. Við erum í botnbaráttu eftir fyrstu tólf leikina og getum aðeins bætt spilamennsku okkar. Þetta er ágætis tækifæri fyrir okkur til þess að byrja upp á nýtt." Ágúst Þór Gylfason hefur skorað í síðustu tveimur leikjum KR sem engu síður hafa tapast. Fréttirnar komu honum, sem og flestum öðrum leikmönnum liðsins, á óvart. "Ég var persónulega sáttur við Magga enda er hann frábær þjálfari sem hefur gert mikið fyrir mig sem leikmann. En við verðum líka að hafa trú á Sigursteini og Einari enda góðir menn og miklir KR-ingar. Það er gott að fá slíka menn inn í stað þess að ráða einhvern óþekktan til félagsins."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Fleiri fréttir Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sjá meira