Tekið út á 2-3 mínútna fresti 15. október 2005 00:01
Færslur á kortareikningi karlmanns sem telur að sér hafi verið byrluð ólyfjan á nektarstað sýna að tekið hafi verið út af kortinu hans á tveggja og þriggja mínútna fresti. Hann hyggst kæra málið til lögreglu. Maðurinn eyddi rúmlega 160 þúsund krónum á staðnum án þess að muna annað en að hafa pantað einn einkadans. Þegar kortanóturnar eru skoðaðar kemur í ljós að sumar úttektirnar eru gerðar á tveggja og þriggja mínútna fresti: Klukkan 3.42 og svo aftur 3.44. Klukkan 4.38 og svo aftur klukkan 4.41. Þetta þykir hjónunum sýna að tekið hafi verið út af kortinu í heimildarleysi, enda sé ómögulegt að kaupa einkadans á tveggja eða þriggja mínútna fresti þar sem dansinn varir í a.m.k. þrjár mínútur. Þau segjast ætla að kæra málið til lögreglu á mánudag. Komið hefur fram að tvær kærur hafi borist til lögreglunnar í Kópavogi vegna svipaðra mála. Ásgeir Davíðsson, eigandi Goldfinger, hefur hins vegar marghaldið fram að ekkert sé til í þessum ásökunum, um sé að ræða menn sem þori ekki að viðurkenna fyrir eiginkonum sínum í hvað peningarnir raunverulega fóru. Ásgeir sagði í þættinum Íslandi í bítið í gær að maðurinn væri að sækjast eftir því að fá afslátt, og bætti við að honum fyndist það svakalegt ef að menn geti komið í sjónvarpið, en umræddur maður var í viðtali á Stöð 2 í fyrradag, og sagt að Jón Jónsson úti í bæ sé þjófur og aumingi og ræni fólk.
Fréttir Innlent Mest lesið Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Innlent Hommar mega enn ekki gefa blóð Innlent Ísraelsmenn hafi gengist við skilyrðum vopnahlés Erlent Tekjur af bjórsölu orðnar meiri en af miðasölu Innlent Matargjöfum Fjölskylduhjálpar hætt: „Stingur okkur í hjartastað“ Innlent Umræðum haldið áfram eftir langan fund þingflokksformanna Innlent Magnús Þór lést við strandveiðar Innlent Kviðdómur komst að niðurstöðu í fjórum fimm ákæruliða Diddy Erlent Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Innlent Hvammsvirkjun bíður dóms Hæstaréttar Innlent Fleiri fréttir Umræðum haldið áfram eftir langan fund þingflokksformanna Hommar mega enn ekki gefa blóð Hvammsvirkjun bíður dóms Hæstaréttar Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Matargjöfum Fjölskylduhjálpar hætt: „Stingur okkur í hjartastað“ Tekjur af bjórsölu orðnar meiri en af miðasölu Hryssan Hlökk er „Dekurprinsessa“ hjá Ásmundi Erni Taka þurfi ákvörðun um sameiningu vinstrisins fyrr en síðar Samfélagið fari ekki á hliðina án tíufrétta Yfir helmingur drengja í sjötta bekk lent í slagsmálum Þjónusta sérgreinalækna við börn nú án endurgjalds Mesta fylgi síðan 2009 Börn í slagsmálum, arðbær bjórsala og dekurprinsessa Beðið eftir krufningarskýrslu Stefna á að þrefalda fjölda hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ Vill tryggja bráðaviðbragð í Öræfum allan ársins hring Lágkúra og della að mati ráðherra Ræðurnar verði nógu margar til að taka veiðigjöldin af dagskrá Ræddu við sextíu manns í tengslum við hvarf Jóns Þrastar Magnús Þór lést við strandveiðar Seinkun fréttatímans seinkað Andlát í Garðabæ: Úrskurðuð í gæsluvarðhald umfram hámarkslengd Tvöfalt siðgæði EBU mikið áhyggjuefni Landris heldur áfram í Svartsengi Með barnaníðsefni í símanum þegar hann var „laminn í stöppu“ Samstöðin hafi aldrei verið í hættu „Þetta er komið út fyrir öll mörk“ „Held að þau átti sig ekki á því hvað þetta skiptir okkur miklu máli“ Læknanemar fái víst launahækkun Prófessor segir málþófið komið út fyrir öll mörk Sjá meira