Bandaríkjamenn hafa ekki svarað fyrirspurnum um fangaflug 2. nóvember 2005 19:30
Bandaríska leyniþjónustan CIA er með leynileg fangelsi fyrir meinta hryðjuverkamenn í Austur-Evrópu og vísbendingar eru um að fangar hafi verið fluttir þangað um Ísland. Bandarísk stjórnvöld hafa engu svarað fyrirspurnum Íslendinga um málið. Ekki sjaldnar en níu sinnum er talið að flugvélar á vegum CIA hafi millilent hér á landi með fanga sem flytja átti til landa þar sem hægt væri að yfirheyra þá og pynta. Það gerist reglulega að millilent sé hér á landi með fólk sem flutt er á milli svæða, eins og það er orðað. Þetta eru vélar sem flytja ólöglega innflytjendur og aðra sem verið er að vísa á milli landaenlíka meinta hryðjuverkamenn. Þegar vélar af þessu tagi millilenda í Keflavík er um borð fjöldi vopnaðra manna enda talið að farþegarnir séu óæskilegt fólk. Vélarnar fá þjónustu, sem er oftast nær einungiseldsneyti, en dyrnar eru ekki opnaðar, enginn fer um eða frá borði og því eru vélarnar til að mynda ekki tollafgreiddar. Samkvæmt upplýsingum fréttastofuStöðvar 2vita íslensk yfirvöld af flugferðum af þessu tagi og gera ráðstafanir ef þurfa þykir, en þær eru að jafnaði ekki miklar þar sem flytjandi sér um öryggismál. Bandaríkjamönnum ber skylda til að láta vita ef flug á vegum hins opinbera fer um Keflavíkurflugvöll en sé það á vegum borgaralegra verktaka ber þeim engin skylda til þess. Það er einmitt málið, það eru verktakar sem sjá um fangaflugið. Þannig snúa Bandaríkjamenn sig út úr málinu og þurfa engum að segja neitt.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu munu vera dæmi um að verktakarnir "leigi" vélar frá Bandaríkjastjórn svo að þeir komi í raun aðeins nálægt fluginu á pappírum, nóg til að villa um fyrir stjórnvöldum þar sem vélarnar fara um. Ragnheiður Árnadóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir bandarísk stjórnvöld ennþá engu hafa svarað fyrirspurnum Íslendinga um fangaflugið. Fréttastofan hefur reynt að rekja eitt þeirra fyrirtækja sem skráð var fyrir einu fluginu sem talið er að hafi verið fangaflug. Þrátt fyrir ákafa leit og ítrekaðar tilraunir var ekki hægt að komast að meiru um fyrirtækið en hvar það var skráð, en forráðamenn eða símanúmer var hvergi að finna - sem sagt hálfgert draugafyrirtæki. Washington Post greindi frá því í dag að leyniþjónustan CIA flytti meinta hryðjuverkamenn oft til leynifangelsa í Austur-Evrópu, á svokallaða svarta staði, þar sem föngunum er haldið og þeir yfirheyrðir. Ekki er greint frá því um hvaða lönd ræðir. Einungis æðstu ráðamenn vestra og í löndunum sem um ræðir eru sagðir hafa vitað af fangelsunum sem áður tilheyrðu sovésku kerfi. Þessi háttur var tekinn upp eftir árásirnar á tvíburaturnana 11.september 2001. Hverjir eru í haldi eða hvað er gert við þá er ekki vitað en ljóst er að einhvern veginn hafa þeir verið fluttir á áfangastað. Vitað er um þrjátíu fanga á þessum svörtu stöðum. Sumar vélarnar sem millilentu hér á landi voru ýmist að koma frá Austur-Evrópueða á leið þangað. Talsmenn CIA neita að ræða málið.
Fréttir Innlent Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður Fleiri fréttir Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Sjá meira