Stjúpfaðir hindraði ekki afskipti 14. október 2005 00:01
Stjúpfaðir barnaníðings í Hafnarfirði reyndi ekki að koma í veg fyrir að barnayfirvöld hefðu afskipti af málinu segir fyrrverandi tengdadóttir hans. Öðru hefur verið haldið fram. Jóna Bjarkan, fyrrverandi mágkona barnaníðingsins, Stefáns Guðna Ásbjörnssonar, segir óskiljanlegt að kerfið bregðist börnunum með þeim hætti sem raun beri vitni og reyni síðan að skella skuldinni á látinn mann sem ekki geti borið hönd fyrir höfuð sér. Félagsmálastjórinn sagði að ógerlegt hefði verið að bregðast við, meðal annars vegna afskipta Eiríks Pálssonar, fósturföður Stefáns Guðna. Jóna segir engan í fjölskyldunni virðast hafa vitað hvað þarna hafi átt sér stað, fyrir utan þá vitneskju að Stefán hafi verið drykkfelldur og ýmsir erfiðleikar hafi fylgt því. „Fjölskyldan er gjörsamlega niðurbrotin yfir öllum þessum hörmungum,“ segir Jóna. Eiríkur Pálsson var áhrifamaður í Hafnarfirði og gegndi starfi bæjarstjóra um fjögurra ára skeið. Jóna segir móðurina hafa átt við fötlun að stríða vegna heyrnardeyfðar og verið mjög einangruð. Eiríkur hafi reynt að vernda hana því hún hafi verið börnunum sínum afar góð. Hún segir hins vegar óhugsandi að hann hafi reynt að halda hlífiskildi yfir ofbeldismanninum. Það eina sem hann gæti hafa gert væri að koma í veg fyrir að börnin yrðu tekin af móðurinni. Aðspurð hvers vegna félagsmálastjórinn skuli þá halda þessu fram segir Jóna að hann sé einfaldlega að „klóra í bakkann" vegna þess að barnaverndarnefnd hafi ekki gert það sem henni bar. Nefndin sé tvímælalaust að reyna að koma sök af sér. Hálfsystkini ofbeldismannsins voru geðlæknir, kennari og lögfræðingur. Hvernig gat það farið fram hjá fjölskyldunni að svona illa væri statt fyrur börnunum? Jóna segist ekki hafa vitað að hann hefði verið til rannsóknar vegna brota gegn dóttur sinni og fengið dóm fyrir að nauðga þrettán ára gömlu barni. Hún hafi verið búsett ásamt þáverandi manni sínum erlendis lengstan hluta þess tíma sem misnotkunin nái yfir. Aðspurð hvernig tilfinning það sé að hafa verið svo nálægt þessum atburðum en samt svo fjarri segir Jóna hana vera hræðilega.
Fréttir Innlent Mest lesið Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Innlent Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Innlent „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Innlent Fleiri fréttir Fær mál vegna sáðláts í andlit ekki tekið upp á ný Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Spenna á ráðstefnu Nató, raforkukostnaður í dreifbýli og biskup um regnbogafánann „Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Erlent