Fjármálaeftirlit ósátt við viðauka 22. júlí 2005 00:01
Fjármálaeftirlitið telur að formaður og varaformaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins hafi farið út fyrir umboð sitt þegar þeir gerðu viðauka við ráðningarsamning framkvæmdastjóra sjóðsins. Fjármálaeftirlitið gerir alvarlega athugasemd við þá ráðstöfun. Gengið var frá starfslokum, Jóhannesar Siggeirssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyrissjóðsins, í febrúar á þessu ári. Þá kom í ljós að í maí árið 2000 hafði fyrrverandi formaður og varaformaður sjóðsins útbúið viðauka við ráðningasamninginn sem stjórnin vissi ekki af. Núverandi stjórn leitaði álits lögmanna vegna þessa og liggur niðurstaðan fyrir; stjórnin sér ekki forsendur til annars en að standa við skriflegan samning við framkvæmdastjórann því samkvæmt ráðningasamningnum átti þáverandi formaður og varaformaður að hafa haft umboð til að gera viðauka við hann án aðkomu annarra stjórnarmanna. Vegna þessa skal samningur um starfslok hans taka mið af gildandi ráðningasamningi ásamt viðaukum. Fjármálaeftirlitið hefur lokið rannsókn málsins og getur ekki fallist á þessa skoðun stjórnarinnar, þ.e. að mennirnir hafi haft umboð til að gera þessar breytingar, því samkvæmt ákvæðum í lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða skal stjórn lífeyrissjóðs, ekki einstaka menn í henni, ákveða laun og ráðningakjör framkvæmdastjóra. Fjármálaeftirlitið mun hins vegar ekki grípa til frekari aðgerða því fyrningarfrestur vegna brota á þessum lagaákvæðum er liðinn. Fjármálaeftirlitið gerir þó alvarlega athugasemd við að stjórn sjóðsins hafi ekki verið kunnugt um starfslokakjör framkvæmdastjórans. Gengið hefur verið frá ráðningu núverandi framkvæmdastjóra samkvæmt nýjum verklagsreglum sem stjórnin samþykkti í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um þetta tiltekna mál.
Fréttir Innlent Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira