Innflutningur erlendra varamanna 28. júlí 2005 00:01
Í dag eru 32 erlendir leikmenn á mála hjá þeim tíu liðum sem í Landsbankadeildinni eru. Samkvæmt útreikningi Fréttablaðsins eru aðeins tólf þeirra yfir meðalmennskuna hafnir og þar með að bæta leik síns liðs. Vignir Guðjónsson skrifar um málið í Fréttablaðinu í dag. Um leið og þetta er sannarlega sláandi niðurstaða er hún einnig afskaplega döpur sem slík og langt frá því að vera viðunandi. Það þarf ekki að velta lengi fyrir sér þeim tilgangi sem býr að baki komu hvers erlends leikmanns. Forsendan hlýtur að vera sú að viðkomandi leikmaður bæti leik síns liðs og hafi eitthvað fram að færa sem er ekki þegar til staðar hjá innlendum leikmönnum félagsins Oft þegar erlendir leikmenn koma hingað á sumrin halda þjálfarar og stjórnarmenn viðkomandi félaga því fram að þeir séu fengnir til að styrkja leikmannahópinn. Hinir sömu lifa í blekkingu - enginn stjórnarmeðlimur með snefil af viðskiptaviti borgar erlendum leikmanni fúlgur fjár til að sitja á bekknum í meirihluta leikja sumarsins. Leikmenn eru fengnir til að lyfta leik síns liðs á hærra plan - sem þeir eru augljóslega ekki að gera miðað við frammistöðu þeirra flestra í sumar. Kostnaðurinn á bak við komu hvers erlends leikmanns er misjafn, en skiptir í flestum tilvikum hundruðum þúsunda sem deilist í ferðakostnað, launagreiðslur og önnur „fríðindi" sem leikmenn fá á meðan dvöl þeirra hér á landi stendur yfir. Flestir - ef ekki allir - eru þeir hálfatvinnumenn sem hafa það almennt býsna gott, spilandi fótbolta á Íslandi yfir sumartímann. Ef marka má frammistöðu þessara leikmanna í sumar hefur verið um hreina peningasóun að ræða í flestum tilvikum. Með þessar sláandi niðurstöður sem tilgreindar eru í Fréttablaðinu í dag til hliðsjónar er ekki úr vegi að rifja upp er ekki úr vegi að rifja upp þá gömlu tuggu hverjum þessi tilgangslausi innflutningur erlendra leikmanna bitnar helst á; nefnilega hinum fjölmörgu ungu og bráðefnilegu leikmönnum sem eru þegar til staðar hjá flestum félögum. Það eru þeir sem líða fyrir innflutninginn á erlendu varaskeifunum og fá um leið þá tilfinningu að enginn tilgangur sé með veru þeirra hjá félaginu og enda jafnvel á því að hrökklast burtu frá því á endanum. Allt vegna þess að erlendir leikmenn virðast njóta friðhelgi hjá þjálfurum sínum þegar kemur að því að skilja leikmenn eftir utan hóps. Á þessu eru þó undantekningar, sú nýjasta hjá Þrótti þar sem Atli Eðvaldsson lét það verða sitt fyrsta verk hjá liðinu að taka hina erlendu leikmenn liðsins út úr liðinu. Í kjölfarið hefur verið allt annað að sjá til liðsins, en auðvitað er ekki hægt að fullyrða um hvort það hafi eitthvað að gera með fjarveru útlendinganna eður ei. Ég ætla ekki að fara mörgum orðum um hvernig þessum fjármunum gæti verið betur varið í unglingastarf félaga og við að byggja upp innri starfsemi félaga - þá umræðu þekkja allir. Meðfylgandi tölfræði sýnir hins vegar að sú umræða á fullan rétt á sér. Tölurnar tala sínu máli.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Fleiri fréttir Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sjá meira