Forsætisráðherra undrandi á úrskurði Kjaradóms 22. desember 2005 20:54 Mynd/GVA
Forsætisráðherra er undrandi á úrskurði Kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna og kallaði formann dómsins, Garðar Garðarson, á teppið í morgun. Óskaði ráðherrann eftir því að Garðar útskýrði ákvörðun sína fyrir þjóðinni. Játti Garðar því. Forystumenn stjórnmálaflokkanna lýsa flestir yfir furðu á dómnum og vera kann að það verði tekið fyrir á Alþingi. Nýlegur úrskurður kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna langt yfir almenna launaþróun í landinu hefur líkt og fyrri úrskurðir dómsins ollið fjaðrafoki í samfélaginu. Reiknidæmið er einnig hjúpað mikilli leynd. Fáir vita hvernig Kjaradómur kemst að sinni niðurstöðu en lögum samkvæmt á hann að taka tillit til þróunar kjaramála á vinnumarkaði og gæta innbyrðis samræmis í starfskjörum þeim er hann ákveður en þó að þau séu á hverjum tíma í samræmi við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem sambærilegir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar. Hvað sem því líður þá þýðir úrskurðurinn það að æðstu ráðamenn fá rúmlega helmingi meiri launahækkun en almennir launþegar í landinu á árinu. Frá og með áramótum verður forsætisráðherra með tæpa milljón í laun á mánuði á meðan meðallaun verkamanns verða rúmar 170 þúsund. Hagfræðingur ASÍ gagnrýnir hina miklu leynd er virðist hvíla yfir rökfærslu kjaradóms. Hann bendir einnig á að útskýringar kjaradóms um að hann taki mið af dómi kjaranefndar hljómi annkanalega í ljósi þess að kjaranefnd beri að taka mið af úrskurði kjaradóms en ekki öfugt. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins lýsir furðu á úrskuði kjaradóms og telur hann líklegan til að riðla jafnvægi og friði á vinnumarkaði. Formenn stjórnmálaflokkanna hafa keppst við að lýsa andúð á úrskurði kjaradóms. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir telur ekki loku fyrir það skotið að Alþingi skerist í málið.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Virkjuðu viðbragðsáætlun vegna flugslyss Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira