Íslenskri konu vísað úr sænskum strætó Óli Kristján Ármannsson skrifar 21. desember 2005 06:00 Umfjöllun í Svíþjóð Í september lenti Rut í fyrsta sinn í því að vera vísað úr strætó með aðstoðarmanni sínum og þá var fjallað um málið í héraðsfréttablaðinu.
Rut Sverrisdóttur, sjónskertri konu sem býr í Bromölla á Skáni í Suður-Svíþjóð, var þar vísað út úr strætisvagni í bænum Hässleholm með lögregluvaldi seint á föstudagskvöld. Kona sem keyrði vagninn neitaði að halda áfram þegar Rut stóð á rétti sínum og neitaði að borga undir aðstoðarmann sinn. Á Skáni eiga aðstoðarmenn blindra og sjónskertra að fá með þeim ókeypis far í almenningsvögnum. Úr varð heilmikil uppákoma þar sem vagnsstjórinn neitaði að aka af stað nema aðstoðarmaðurinn borgaði. Voru aðrir farþegar farnir að hreyta ónotum í Rut en hún var einnig með ársgamlan son sinn með í för. "Svo var þetta nálægt klukkan hálf tólf um kvöld niðri í miðbæ og þar langaði mig ekki að vera á ferðinni með barnið innan um fólk að drekka," segir hún. Eftir um tuttugu mínútna þóf kom svo lögreglan, þeim var öllum vísað frá borði og tóku leigubíl heim. "Ég átti aldrei von á því að þetta myndi vekja svona mikla athygli," segir Rut, en fjallað var um uppákomuna í héraðsfréttablöðum og -sjónvarpi á Skáni og í aðalfréttatíma Sænska ríkissjónvarpsins síðasta sunnudagskvöld. "Þetta var heilmikil úttekt, fréttin var heilar fjórar mínútur." Rut segir þetta vera í annað sinn sem hún lendi í svona stappi við vagnstjóra, en í september var lögregla einnig kvödd til þegar það sama gerðist. Í þetta sinn ákváðu Rut og aðstoðarmaður hennar hins vegar að vekja athygli á málinu og sendu staðarblaðinu bréf. "Ég var ekki bara að standa á rétti mínum heldur á ég fimm ára gamla sjónskerta stelpu sem þarf á þessari þjónustu að halda þegar hún verður eldri. En það er ekki skemmtilegt að standa í þessu." Vagnsstjórinn hefur eftir að málið kom upp fengið áminningu í starfi, segir Rut, og hún fengið afsökunarbeiðni frá umsjónarmanni almenningssamgangna á Skáni. Rut flutti til Svíþjóðar um mitt ár 2004 með manni sínum Bjarka og Helgu dóttur þeirra. "Ég er hálfgerður flóttamaður frá Íslandi," gantast hún og kveðst hafa verið nauðbeygð að flytja því fjölskyldan fái ekki þá þjónustu heima sem hún þarf á að halda. Áður bjuggu þau á Akureyri.
Birtist í Fréttablaðinu Innlent Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Fleiri fréttir Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Sjá meira