Hlutafélagavæðing dulbúin einkavæðing 8. nóvember 2005 08:00 MYND/Valgarður
Kristinn H. Gunnarsson segir að hægt sé að ná fram nauðsynlegum breytingum hjá RÚV án þess að breyta rekstrarfyrirkomulagi, eins og menntamálaráðherra hefur boðað. Hann segir hlutafélagavæðingu RÚV ekkert annað en dulbúna einkavæðingu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að í nýju frumvarpi um Ríkisútvarpið sem leggja á fram á þingi fyrir jól sé gert ráð fyrir því að rekstrarfyrirkomulagi Útvarpsins verði breytt. Að sögn hennar er nú verið að skoða hvort verði fyrir valinu, að gera RÚV að einkahlutafélagi eða sameignarfélagi. Þorgerður vill þó ekki segja til um hvor leiðin verði fyrir valinu, en ESA, eftirlitsstofnun EFTA, gerði athugasemdir við frumvarp um RÚV í fyrra þar sem gert var ráð fyrir að útvarpið yrði gert að sameignarfélagi með einn eiganda. Aðspurð um hvort til greina kæmi að RÚV færi í heild eða að hluta af auglýsingamarkaðisagði Þorgerður að hún vildi ekkert segja um frumvarpið í heild eins og væri. Það kæmi fyrst fyrir augu þingflokka og svo til þingsins Kristinn H Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur gagnrýnt breytingar á rekstrarfyrirkomulagi RÚV. Hann segir ljóst að framsóknarmenn séu bundnir af samþykktum flokksins og því geti þeir ekki lagt blessun sína yfir hlutafélagavæðinguna. Hann telur að þau tvö atriði sem ná eigi fram með frumvarpi um RÚV, það er varðandi pólitískt skipað Útvarpsráð og skipanir ráðherra í stöður innan RÚV, megi ná fram á annan hátt. Það sé hægt með breytingu á gildandi lögum með óbreyttu stofnanafyrirkomulagi. „Ætli menn að fara að gera Útvarpið að hlutafélagi þá er það auðvitað alveg augljóst mál að tilgangurinn er að breyta stofnun í seljanlegt fyrirbæri. Það er engum vafa undirorpið, hvort sem menn ætla sér að selja núna eða seinna," segir Kristinn.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Fleiri fréttir Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins „Ef ég get þetta þá geta allir þetta“ „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? Sjá meira