Dómsuppkvaðningu enn frestað 17. maí 2005 00:01
Dómsuppkvaðningu í máli rússneska auðjöfursins Mikhails Khodorkovskys, eiganda Yukos-olíurisans, hefur enn á ný verið frestað þangað til á morgun. Enginn vafi virðist þó leika á því að Khodorkovsky verði fundinn sekur. Khodorkovsky og samstarfsmaður hans, Lebedev, eru meðal annars sakaðir um þjófnað, fjárdrátt og skattsvik. Réttarhöldin yfir þeim þykja um margt minna á aðfarir gömlu sovésku kommúnistastjórnanna, enda virðist liggja nokkuð ljóst fyrir að með þessum málarekstri sé Pútín Rússlandsforseti að losa sig við óþægilegan keppinaut. „Sýndarréttarhöld“ og „pólitískt leikrit“; þannig lýsa verjendur Khodorkovskys málarekstrinum og hafa fundið öflugan málsvara í bandarísku ríkisstjórninni sem einnig hefur gagnrýnt þetta mál. Það er hins vegar athyglisvert að það eru fáir Rússar sem gráta örlög Khodorkovskys. Hann nýtur lítils stuðnings meðal almennings sem gremst hvernig örfáir sérútvaldir menn, eins og Khodorkovsky, urðu auðkýfingar nánast á einni nóttu þegar sovésku ríkisfyrirtækin voru einkavædd. Flest bendir til þess að Khodorkovsky og Lebedev verði sakfelldir á morgun en þá á eftir að ákvarða refsinguna. Saksóknari hefur krafistíu ára fangelsisdóms og ef réttarhöldin eru sá pólitíski tilbúningur sem stuðningsmenn Khodorkovskys segja, þá má búast við því að báðir menn hljóti einmitt tíu ára dóm.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira