Mannskæð veira í Angóla 12. apríl 2005 00:01
Mannskæður og óhuggulegur vírus, svokallaður Marburg-vírus, veldur miklu mannfalli í Angóla. Fáum dögum eftir smit deyr fólk og engin lækning finnst. Í fyrstu voru tilfellin fá. Nokkrir sjúklingar, einn eða tveir á dag, lifðu ekki skæðan og grimmilegan sjúkdóm af. Læknar í Angóla áttuðu sig ekki á því hvað var á seyði en nú, nokkrum mánuðum síðar, er ástandið bæði verra og mannfallið meira. Í ljós kom að svokölluð Marburg-veira breiðist út. Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir að um veirusjúkdóm sé að ræða sem gangi undir nafninu blæðandi veiruhitasótt og sé náskyldur ebola-sjúkdómnum. Sjúkdómurin lýsi sér í því að menn veikist með bráðum einkennum. Venjulega fylgi honum hár hiti, vöðva- og höfuðverkir, eins konar hálsbólga og uppköst og niðurgangur. Síðar komi útbrot og blæðingar í húð og innri líffærum sem á endanum dragi fólk til dauða. Fjölskyldur sjúklinga neita að koma með þá á sjúkrastofnanir sem heilbrigðisstarfsfólk segir valda verri faraldri. Einnig virðist nokkuð um það að hreinlætis sé ekki gætt á sjúkrahúsum og veikin breiðist þar út. 203 heilbrigðisstarfsmenn hafa látist eftir að hafa smitast af Marburg-veirunni. Þetta hefur ekki farið fram hjá íbúum á þeim svæðum þar sem vírusinn hefur valdið manntjóni og fólk virðist kenna heilbrigðisstofnunum um. Til að mynda neyddust starfsmenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar til að flýja eftir að starfsstöð þeirra var grýtt. Engin meðferð er til við sjúkdómnum. Aðspurður hvaðan sjúkdómurinn komi segir Haraldur að það sé mikil ráðgáta hvar veiran haldi til í náttúrunni. Hins vegar sé vitað að hún geti sýkt apa og apar hafi sýkt menn. Það hafi gerst í þýsku borginni Marburg 1967. Þá hafi svokallaðir grænir apar verið fluttir til Þýskalands og Júgóslavíu sem átt hafi að nota við rannsóknir. Þá hafi á fjórða tug mann veikst af sjúkdómnum en sem betur fer hafi þetta ekki orðið að mikilli farsótt.
Erlent Fréttir Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Sjá meira