Nefnd SÞ vill stefnubreytingu 23. ágúst 2005 00:01
Nefnd Sameinuðu þjóðanna um afnám kynþáttamisréttis hefur lýst áhyggjum sínum af því að fjárveitingar til Mannréttindaskrifstofu Íslands hafi verið felldar úr fjárlögum 2005. Nefndin hvetur stjórnvöld til að halda áfram samstarfi við samtök sem berjast gegn kynþáttamisrétti, þ.m.t að stuðla að því að tryggja rekstrargrundvöll og sjálfstæði slíkra samtaka. Nefndin mælir með því að alþjóðasamningur um afnám alls kynþáttamisréttis verði lögfestur á Íslandi til að tryggja heildstæða vernd gegn kynþáttamisrétti. Nefndin hvetur yfirvöld til að móti virkari stefnu til að koma í veg fyrir kynþáttamisrétti og skylda mismunun. Hún bendir á að fyrirbyggjandi aðgerðir skipi stóran sess í samningnum og hvetur stjórnvöld til að grípa til beinna aðgerða til að koma í veg fyrir kynþáttafordóma á öllum sviðum mannlífsins. Nefndin hvetur íslensk stjórnvöld til að taka til athugunar setningu heildstæðrar löggjafar sem bannar mismunun þar sem m.a. verði tryggð raunhæf úrræði til að koma í veg fyrir kynþáttamisrétti hvort sem er á sviði einkaréttar eða í stjórnsýslunni. Nefndin mælist einnig til þess að stjórnvöld fullgildi alþjóðasamninga um stöðu ríkisfangslausra frá 1954 og 1961. Nefndin lýsir áhyggjum sínum af upplýsingum þess efnis að hælisumsóknir séu ekki alltaf rétt meðhöndlaðar hjá landamæralögreglu og mælir með því að skipulögð fræðsla verði aukin til að tryggja að lögregla þekki nauðsynlega þætti flóttamannaverndar og hafi upplýsingar um ástand í upprunalöndum hælisleitenda. Nefndin mælir með því að stjórnvöld endurskoði 24 ára aldursskilyrði vegna veitingar dvalarleyfa fyrir maka og skoði aðrar leiðir til að koma í veg fyrir málamynda – eða nauðungarhjónabönd. Þá lýsti nefndin áhyggjum sínum af því fyrirkomulagi að veita atvinnurekendum en ekki hlutaðeigandi starfsmönnum bráðabirgðatvinnuleyfi. Hún mælist til að stjórnvöld bæti réttarstöðu erlendra verkamanna og komi í veg fyrir að þeir verði fyrir mismunun.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Fleiri fréttir Hvorki ákærðu né brotaþoli könnuðust við fíkniefnabrask Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Sjá meira