Björk Vilhelms í fyrsta sætinu 18. september 2005 00:01
Þrátt fyrir svolitla rigningu sýndu borgarfulltrúar Reykvíkinga góða takta á árlegu golfmóti borgarstjórnar sem haldið var á Grafarholtsvellinum á föstudag. Einbeitingin skein úr andlitum og keppnisharkan var mikil þó gleðin væri ekki langt undan. Hver og einn borgarfulltrúi lék í liði með vönum kylfingi úr forystu Golfklúbbs Reykjavíkur og völdust Björk Vilhelmsdóttir og Sigurjón Ólafsson, fyrrverandi stjórnarmaður í klúbbnum, saman. Þau byrjuðu mjög vel og náðu góðri forystu og um tíma stefndi í öruggan sigur þeirra. Þegar nokkrar holur voru eftir komust Kjartan Magnússon og Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri GR, á mikið skrið og keppnin varð afar tvísýn. "Við vorum andandi ofan í hálsmálið á þeim undir lokin," segir Margeir og hrósar um leið Björk sigurvegara fyrir fagmannlega tilburði á flötunum. "Hún var eins og þaulvanur kylfingur." "Ég stóð mig ágætlega, svona af nýgræðingi að vera," segir Björk sem af miklu lítillæti eignar Sigurjóni meðspilara sínum heiðurinn af sigrinum. "Reyndar unnum við mjög vel saman," bætir hún við. Þetta var í þriðja sinn sem Björk leikur golf og má því árangur hennar í mótinu heita undraverður. Og það er aldrei að vita nema afrek hennar á golfvellinum verði fleiri í framtíðinni því samkvæmt öllum pólitískum teiknum lætur hún af starfi borgarfulltrúa í vor. "Ég útiloka ekki að taka golfið fastari tökum. Það gæti alveg komið til greina sem hobbý þegar maður hættir að hafa fundi sem hobbý." Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hafnaði í þriðja sæti en félagi hennar var Viggó H. Viggósson, stjórnarmaður í GR. Steinunn er í GR og hefur notið leiðsagnar Ragnhildar Sigurðardóttur við æfingar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er einnig í klúbbnum og að sögn Margeirs framkvæmdastjóra er hann afskaplega illa haldinn af golfbakteríunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Sjá meira