Fær að leiða fram vitni 18. október 2005 00:01
Hæstiréttur hefur samþykkt kröfu Lúðvíks Gisurarsonar um að fá að leiða fram vitni sem varpað gætu ljósi á meint ástarsamband móður hans og Hermanns Jónassonar, fyrrverandi forsætisráðherra og lögreglustjóra í Reykjavík. Lúðvík heldur því fram að Hermann hafi verið faðir hans og eru vitnaleiðslurnar liður í viðleitni hans til að fá lífsýni úr Hermanni heitnum. Málið sem um ræðir er um margt sérstakt. Í sumar sem leið fékk Lúðvík nokkur Gissurarson staðfest með DNA rannsókn að maðurinn sem hann hafði verið kenndur við frá fæðingu, árið 1932, Gissur Bergsteinsson, hefði ekki verið faðir hans. Niðurstaðan kom Lúðvík þó ekki á óvart enda var tilefni DNA rannsóknarinnar að hans sögn að sanna að Hermann Jónasson, fyrrverandi forsætisráðherra sem nú er látinn, hafi verið faðir hans en ekki Gissur. Í kjölfarið höfðaði Lúðvík mál gegn börnum Hermanns, Steingrími Hermannssyni, fyrrum forsætisráðherra, og systur hans, þar sem farið var fram á að kanna hvort lífssýni úr Hermanni væru til í geymslu sem nota mætti til að sannreyna meint rétt faðerni Lúðvíks. Héraðsdómur hafnaði því og sömuleiðis að Lúðvík gæti fengið að leiða vitni fyrir dóm sem varpað gætu ljósi á samband móður hans og Hermanns Jónassonar, en eiginkona Hermanns og móðir Lúðvíks voru náfrænkur. Hæstiréttur er því þó ósammála og því munu vitnin verða leitt fyrir héraðsdóm til að varpa ljósi á hvort Hermann og móðir Lúðvíks hafi þekkst og hugsanlega átt í sambandi á þeim tíma. Lúðvík heldur því fram að móðir hans og Hermann hafi átt í ástarsambandi þegar móðir hans starfaði sem ritari Hermanns sem þá var lögrelgustjóri í Reykjavík. Maðurinn sem Lúðvík fékk í sumar staðfest með rannsókn að væri ekki rétti faðir hans, Gissur Bergsteinsson, var stuttu eftir fæðingu Lúðvíks, árið 1935, skipaður hæstaréttardómari af Hermanni Jónassyni, sem þá gengdi embætti dómsmálaráðherra jafnhliða embætti forsætisráðherra.
Fréttir Innlent Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au-pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Sjá meira