Stærsti íþróttaviðburður ársins 5. febrúar 2005 00:01
Í kvöld fer fram úrslitaleikurinn í amerísku NFL-deildinni þar sem keppt verður um ofurskálina svokölluðu, eða Super Bowl. Um er að ræða stærsta íþróttaviðburð ársins og fær úrslitaleikurinn í NFL öllu jöfnu gríðarlegt áhorf út um allan heim. Búist er við að um helmingur íbúa Bandaríkjanna muni horfa á leikinn í kvöld. Ekkert hefur verið til sparað til að gera sýninguna sem glæsilegasta. Heimsfrægir tónlistarmenn á borð við Paul McCartney munu skemmta í hálfleikssýningunni sem McCartney sjálfur segir að sé "sú flottasta sem hægt sé að taka þátt í." Það eru lið New England Patriots og Philadelphia Eagles sem leiða saman hesta sína að þessu sinni. Langflestir búast við sigri Patriots sem hafa á gríðarlega öflugu liði á að skipa og eru auk þess núverandi NFL-meistarar. Með sigri í kvöld mun New England trygga sér sinn þriðja meistaratitil á síðustu fjórum árum á meðan Eagles hafa ekki unnið Super Bowl frá árinu 1960. Helsti styrkur Patrios liggur í einstaklega sterkri liðsheild sem Bill Belichick, þjálfari liðsins, hefur náð að mynda á síðustu árum. Leikstjórnandi liðsins er Tom Brady og býr hann yfir mikilli reynslu sem mun án efa koma liðinu til góða. Spekingar ytra segja að ef Eagles ætli sér að eiga möguleika á sigri verði liðið að spila frábæra vörn og freista þess að halda aftur af hlaupara Patriots, Corey Dillon, sem hefur farið á kostum það sem af er úrslitakeppninni.
Íþróttir Mest lesið Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Gunnlaugur Árni á U.S. Open Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Clark í sérflokki en þarf að byrja snemma eins og Gunnlaugur Árni Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Mexíkóar fyrstir í 32-liða úrslit eftir skelfileg mistök Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Dagskráin: Kemst Gunnlaugur Árni í gegnum niðurskurðinn á US Open? Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Sjá meira