Áratuga samband kórónað 9. apríl 2005 00:01
Karl Bretaprins gekk í gær að eiga heitkonu sína Camillu Parker Bowles í borgaralegri hjónavígslu í ráðhúsi Windsor-bæjar vestur af Lundúnum. Þar með var kórónað áratugalangt samband þeirra, sem hefur staðið af sér ansi margt, svo sem aðgangsharða hnýsni gulu pressunnar, hneykslismál og hjónaband Karls og Díönu prinsessu. Brúðhjónin gengu hönd í hönd út úr ráðhúsinu að vígslunni lokinni en fagnandi mannfjöldinn sem þar var saman kominn fékk ekki að sjá neinn opinberan brúðarkoss. Þá var hinu nýgifta pari ekið í viðhafnarbifreið af Rolls-Royce-gerð í kapellu Windsor-kastala þar rétt hjá. Þar blessaði erkibiskupinn af Kantaraborg, Rowan Williams, brúðhjónin við hátíðlega en hófstillta athöfn. Loks fór fram brúðkaupsveisla í boði Elísabetar Englandsdrottningar í salarkynnum Windsor-kastala. Við hina kirkjulegu blessunarathöfn játuðu brúðhjónin "syndir og misgjörðir" sínar og sóru að vera hvort öðru trú í hjónabandinu. Elísabet drottning var viðstödd athöfnina og 800 boðsgestir, þar á meðal Tony Blair forsætisráðherra. Við giftinguna tekur Camilla formlega við fyrra hlutverki Díönu sem prinsessan af Wales, en hún hefur lýst því yfir að hún hyggist ekki nota þann titil. Hún hefur þess í stað valið titilinn hertogaynjan af Cornwall. Sjónvarpað var beint frá blessunarathöfninni, þar á meðal hingað til lands. Ólíku var saman að jafna, hinni látlausu hjónavígslu Karls og Camillu nú eða íburðarmiklu brúðkaupi Karls og Díönu árið 1981. Díana vann hug og hjörtu Breta og almennings víða um heim, en missti ást eiginmannsins. Hún lést í bílslysi í París árið 1997. Hjónin nýgiftu hyggjast eyða hveitibrauðsdögunum í veiðihúsi í Skotlandi sem áður tilheyrði langömmu Karls. Þau munu þó þurfa að gera hlé á þeim til að vera við útför Rainiers Mónakófursta á föstudaginn.
Erlent Fréttir Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Fleiri fréttir Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Sjá meira