Arsenal og Newcastle skriðu áfram 9. janúar 2005 00:01
Arsenal og Newcastle tryggðu sér í gær sæti í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í fótbolta. Ekki var búist við því fyrirfram að liðin tvö myndu lenda í verulegum vandræðum með andstæðinga sína en annað kom á daginn. Bæði lið lentu í basli en höfðu að lokum sigur. Newcastle sótti utandeildarliðið Yeading heim á Loftus Road, heimavöll Queens Park Rangers og lenti í vandræðum. Fyrir leikinn hafði stærsta dagblað Bretlands, The Sun, lofað markverði Yeading, Del Preddie, nýjum Ford Focus ef honum tækist að halda markinu hreinu í leiknum. Preddie stóð vaktina vel í markalausum fyrri hálfleik og segja má að Yeding hafi fengið besta færi hálfleiksins þegar Stephen Harper, markvörður Newcastle, varði glæsilega aukaspyrnu frá David Clarke. Newcastle náði hins vegar að brjóta ísinn þegar sex mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en þá skoraði Lee Bowyer eftir fallegan undirbúning frá Craig Bellamy. Shola Ameobi bætti síðan öðru marki við fyrir Newcastle tíu mínútum síðar en leikmenn Yeading gáfu ekki tommu eftir og komu í veg fyrir að leikmenn Newcastle skoruðu fleiri mörk. Johnson Hippolyte, knattspyrnustjóri Yeading, var í skýjunum eftir leikinn og lýst sínum mönnum sem hetjum. "Ég er mjög stoltur af strákunum sem eru allir hetjur. Margir af þessum leikmönnum hafa orðið fyrir vonbrigðum á ferlinum en ég vissi að þeir hefðu þann karkater sem þeir sýndu í dag. Við vissum að við vorum áhugamenn að spila við atvinnumenn en strákarnir stóðu sig frábærlega," sagði Hippolyte. Arsenal lenti einnig í vandræðum gegn 1. deildarliði Stoke á Highbury. Varnarmaðurinn Wayne Thomas Stoke yfir eftir hálftíma leik en Arsenal hristi af sér slyðruorðið í síðari hálfleik og mörk frá Jose Antonio Reyes og Robin van Persie tryggðu þeim sigurinn. Leikmenn Arsenal voru þó stálheppnir því Gael Clichy, varnarmaður Arsenal, bjargaði á marklínu og Ade Akinbiyi, sóknarmaður Stoke, átti þrumufleyg í þverslá.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Handbolti Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Fótbolti FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Fótbolti Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Fleiri fréttir Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Perla Sól skiptir um skóla og er boðin velkomin í fenið á Flórída Fékk tveggja högga refsingu fyrir reiðiskast á US Open Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Verður hann samt íþróttamaður ársins? Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Miður sín eftir brotið og kom í klefann að biðjast afsökunar Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Sumarmótin: TM mótið í Vestmannaeyjum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Maður dagsins á HM: Saknar Hákonar en er markahæstur á mótinu Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Unnu sinn besta sigur frá upphafi Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sjá meira