Vill láta kæra hugverkastuld 4. nóvember 2005 07:00 Upptækur tölvubúnaður hjá lögreglu.Hér má sjá hluta af þeim tölvubúnaði sem gerður var upptækur hjá 12 einstaklingum í húsleit lögreglu í lok september í fyrra. Málið, sem snýst um ólögleg skráaskipti á netinu, er enn í rannsókn.
Rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á hugsanlegum hugverkastuldi sem hófst með rassíu í fyrrahaust stendur enn. Gerð var húsleit hjá tólf einstaklingum og tölvur og tölvubúnaður gerður upptækur. Allir voru handteknir og gistu tveir fangageymslur nóttina. Fólkið var grunað um að sækja og dreifa kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, forritum, tónlist og tölvuleikjum með DC++ skráaskiptiforritinu. Brot gegn höfundarréttarlögum geta varðað allt að tveggja ára fangelsi. Aðgerðir lögreglu í fyrra komu í framhaldi af kæru samtaka höfundarrétthafa í febrúar 2004. Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri Smáís, samtaka myndrétthafa, segir sig vissulega farið að lengja eftir niðurstöðu í málinu, en segist litlar spurnir hafa af gangi rannsóknarinnar. "Auðvitað vildi ég að komin væri fram niðurstaða og vonandi með þeim hætti að gefin verði út ákæra," segir hann og telur ríða á að fá niðurstöðu dómstóla um lögmæti niðurhals og skráaskipta á netinu. "Við teljum að lögin séu mjög skýr. Allt í kring um okkur falla dómar, sem betur fer rétthöfum í hag, þannig að ég hef svo sem ekki áhyggjur af því að vinna ekki málið. Það er hins vegar ansi slæmt að ekki sé komin niðurstaða, því hún myndi skýra línurnar og eyða óvissu." Hallgrímur segir umhverfi skráaskipta hafa breyst töluvert síðan húsleitirnar voru gerðar í fyrra. Þá mátti í kjölfarið merkja töluverðan samdrátt í netumferð um tíma. Eftir að látið var í auknum mæli af gjaldtöku fyrir erlent niðurhal segir hann hlut DC++ skráaskiptiforritsins hafa minnkað og fleiri farnir að nota það sem kallast Bittorrent. "Þá er fólk jafnvel að logga sig inn á erlendar síður," segir hann, en bætir um leið við að tilfinning hans sé að dregið hafi verulega úr skráaskiptum af þessum toga. "Ég held okkur hafi tekist að opna augu fólks fyrir því að þetta var ekki eðlilegt. Vilji fólk brjóta af sér þá gerir það það, en við höfum heyrt í fjölmörgum sem segjast bara ekki standa í þessu, enda ekki ómaksins vert." Ekki náðist í Jón H. Snorrason, yfirmann efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, við vinnslu fréttarinnar.
Innlent Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður Fleiri fréttir Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Sjá meira